viðurkenning á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi.
Frú forseti. Nú mæli ég fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, nr. 26/2010, um er að ræða svokallaða meðalhófsprófun. Þetta frumvarp hefur verið lagt fram tvisvar áður en náði ekki fram að ganga. Það er mikilvægt að það nái fram að ganga en með því eru efndar skuldbindingar íslenska ríkisins til innleiðingar á tilskipun Evrópusambandsins 2018/958 um meðalhófsprófun, þetta eru EES-reglur. Dómur EFTA-dómstólsins féll á íslenska ríkið fyrir að hafa ekki innleitt reglurnar þann 5. desember 2024.
Markmiðið með þessu frumvarpi sem ég mæli hér fyrir er að tryggja að framkvæmt sé mat á meðalhófi áður en innleidd er ný lögverndun eða gildandi lögverndun starfsgreina breytt. Þetta er liður í því að tryggja eðlilega starfsemi á innri markaði EES-svæðisins en jafnframt að tryggja neytendavernd.
Með því frumvarpi sem er til umfjöllunar núna er lagt til að innleidd verði í íslenskan rétt efnisákvæði tilskipunar Evrópusambandsins 2018/958 um meðalhófsprófun áður en samþykkt er ný lögverndun starfsgreina eða henni breytt. Tilskipunin sem um ræðir var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar árið 2021 og fékk númerið 243 þann 24. september 2021.
Frumvarpið felur ekki í sér efnislegar breytingar á gildandi ákvæðum laga nr. 26/2010 heldur einvörðungu þau nýmæli að stjórnvöld skuli framkvæma meðalhófsprófun og þar með lögfest að þeim beri að framkvæma meðalhófsmat áður en ný lögverndun er sett á fót eða gildandi breytt. — Finnst ykkur þetta ekki andríkur texti? (Gripið fram í: Mjög.)
Í fyrsta lagi skal slíkt vera rökstutt með vísan til almannahagsmuna og í öðru lagi skulu ákvæðin vera til þess fallin að ná því markmiði sem stefnt er að. Ekki skal ganga lengra en nauðsynlegt er til að ná því markmiði sem stefnt er að. Matið á að vera í réttu hlutfalli við eðli, innihald, tilætluð áhrif og umfang. Þetta á að leiða til vandaðri reglusetningar um lögverndun starfa þar sem ekki er gengið lengra í að lögvernda starfsgreinar en þörf er á með tilliti til almannahagsmuna.
Þetta frumvarp fer ágætlega saman við 10. lið í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um fjölbreytni í atvinnulífi og hagstæð rekstrarskilyrði fyrirtækja með því að tryggja að takmarkanir á aðgengi að starfsgreinum séu vel ígrundaðar og rökstuddar.
Framkvæmd meðalhófsprófana er á ábyrgð hlutaðeigandi ráðherra hverju sinni og í þeim tilvikum sem hlutaðeigandi ráðherra setur fram nýjar eða breyttar reglur um lögverndun þarf að skrá rökstuðning fyrir þeim í gagnagrunn Evrópusambandsins yfir lögverndaðar starfsgreinar þar sem fram kemur að reglurnar hafi verið metnar í samræmi við ákvæði tilskipunarinnar, þær séu rökstuddar sem réttlætanlegar og að meðalhófs hafi verið gætt.
Í frumvarpinu er líka mælt fyrir um heimild ráðherra menningar, nýsköpunar og háskóla til að setja reglugerð um slíka meðalhófsprófun, upplýsingaskipti milli aðildarríkja, kröfur um skráningu í gagnagrunn og önnur framkvæmdaratriði tilskipunarinnar um meðalhófsprófun.
Virðulegi forseti. Í frumvarpinu er ekki gengið lengra en lágmarksákvæði tilskipunar Evrópusambandsins um meðalhófsprófun kveða á um — það er engin gullhúðun í þessu frumvarpi. Það felur einungis í sér ákvæði til innleiðingar á tilskipuninni til samræmis við EES-samninginn. Ekki er gert ráð fyrir að frumvarpið hafi áhrif á fjárhag ríkissjóðs. Það eykur ekki reglubyrði á fyrirtæki eða einstaklinga heldur frekar er það til þess fallið að hafa jákvæð áhrif á atvinnufrelsi og samkeppnishæfni og ætti að hafa hlutlaus áhrif á jafnrétti kynjanna.
Virðulegi forseti. Nú þegar ég hef gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum legg ég til að lokinni umræðunni að málinu verði vísað til allsherjar- og menntamálanefndar og til 2. umræðu.