fjölmiðlar.
Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á fjölmiðlalögum, nr. 38/2011, um stuðning við einkarekna fjölmiðla, en málið er endurflutt frá 156. löggjafarþingi. Sá kafli fjölmiðlalaga sem fjallaði um stuðning við einkarekna fjölmiðla féll úr gildi síðastliðin áramót og með þessu frumvarpi er lagt til að kaflinn verði tekinn upp í lögin að nýju og fjölmiðlum þar með tryggður stuðningur á þessu ári.
Fjölmiðlar hafa mikilvægu hlutverki að gegna í lýðræðissamfélagi, þeir flytja fréttir af málefnum líðandi stundar og eru mikilvægur vettvangur skoðanaskipta um þjóðfélagsleg málefni. Slík umræða og þekking skiptir miklu máli við töku lýðræðislegra ákvarðana. Við þekkjum fjölmiðla einnig sem hina svokölluðu fjórðu stoð þar sem þeir veita stjórnvöldum, atvinnulífi og öðrum stofnunum mikilvægt aðhald.
Á ráðstefnu ríkislögreglustjóra í lok mars kom fram í máli yfirmanns öryggis- og greiningarsviðs ríkislögreglustjóra að falsfréttir væru meðal þeirra ógna sem væru hvað líklegastar hér á landi. Falsfréttir og upplýsingaóreiða fela í sér ógn við lýðræðið og þá eru ritstýrðir fjölmiðlar mjög mikilvægir svo almenningur geti nálgast upplýsingar sem treysta má að búið sé að sannreyna. Það er því mikilvægt fyrir landið og lýðræðið að hér séu starfandi traustir, óháðir og stöðugir fjölmiðlar sem hafa burði til að sinna sínu mikilvæga hlutverki.
Virðulegi forseti. Með frumvarpinu er ætlunin að taka þennan kafla sem mælir fyrir um stuðning við einkarekna fjölmiðla aftur upp í lögin, að mestu óbreyttan, með gildistíma út árið. Mikilvægt er að stuðningur við einkarekna fjölmiðla á þessu ári sé tryggður á meðan unnið er að gagngerri endurskoðun á kerfinu í heild sinni. Ein breyting er gerð frá fyrra fyrirkomulagi. Þak stuðningsins er tvíþætt, fyrra þakið mælir fyrir um að umsækjendur geti hlotið að hámarki 25% af stuðningshæfum rekstrarkostnaði en seinna þakið mælir fyrir um að stuðningur til hvers umsækjanda geti þó ekki verið hærri en sem nemur 22% af fjárveitingu til verkefnisins. Breytingin felst í því að seinni hlutfallstalan hefur verið lækkuð úr 25% í 22% en fyrra þakið stendur enn óbreytt. Markmið breytingarinnar er að stuðla að jafnari dreifingu stuðningsins milli umsækjenda þar sem hver umsækjandi getur nú ekki fengið hærri stuðning en sem nemur 22% af heildarfjárveitingu til verkefnisins. Þetta er í takt við þá þróun sem við sjáum annars staðar á Norðurlöndunum, þ.e. að lækka hámarkshlutfall styrkja til einstakra fjölmiðla sem og að auka stuðning við staðbundna miðla. Markmiðið er að tryggja aðgengi alls almenning að vandaðri og óháðri fréttamennsku hvar sem er á landinu og styðja við staðbundna fjölmiðla sem miðla af heimabyggð í heimabyggð.
Þá eru gerðar tvær breytingar frá 156. löggjafarþingi. Annars vegar hefur dagsetningu umsóknarfrests verið breytt en eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að miða við 1. september í þeim efnum þar sem sú dagsetning er þegar liðin. Því er gert ráð fyrir að mælt verði fyrir um umsóknarfrest í reglugerð svo unnt sé að auglýsa og úthluta stuðningi til einkarekinna fjölmiðla á þessu ári. Þá hefur hins vegar verið tekið tillit til þeirrar tæknilegu breytingar sem meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar lagði til á 156. löggjafarþingi og frumvarpinu breytt til samræmis.
Virðulegi forseti. Þetta er mikilvægur stuðningur. Hann hefur komið sér vel fyrir fjölmiðla landsins. Útgefendur hafa nefnt þess dæmi að rekstrarstuðningurinn sé grundvöllur þess að hægt sé að halda rekstri fjölmiðla gangandi, m.a. vegna þess að kostnaður tengdur til að mynda prentun og dreifingu hafi aukist mjög á undanförnum árum. Styrkirnir hafa líka reynst staðbundnum miðlum vel og verið mikilvægur liður í því að viðhalda rekstri þeirra. Framangreint er í samræmi við það markmið stuðningsins að styrkja og efla ritstjórnir á frétta- og dagskrármiðlum sem gefa út fréttir og fréttatengt efni og/eða fjalla um samfélagsleg málefni og tryggja aðgengi almennings á öllu landinu að ritstýrðum fjölmiðlum.
Almenningur telur líka mikilvægt og er ánægður með hvernig ríkið hefur stutt við einkarekna fjölmiðla. Niðurstöður úr könnun sem ráðuneytið lét gera í upphafi mars sýna að 71,4% aðspurðra telja að ríkið eigi ýmist að halda stuðningnum óbreyttum eða styðja meira við einkarekna fjölmiðla.
Það hefur þó verið kallað eftir auknum fyrirsjáanleika og ég veit að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra mun bregðast við því ákalli í upphafi næsta árs. Þrátt fyrir að stuðningurinn hafi reynst vel og almenn ánægja verið með hann þá hafa einnig komið ýmsar ábendingar sem varða stuðninginn og hvað mætti betur fara. Þar erum við bæði að tala um framkvæmdina en líka með hvaða hætti stuðningnum eigi að vera háttað.
Virðulegur forseti. Að því mæltu legg ég til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar.