157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[18:03]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og kom fram í framsögu hæstv. ráðherra þá er þetta mál endurflutt hér óbreytt frá síðasta þingi. Frumvarpið felur hins vegar í sér einhverja breytingu á úthlutun þessara styrkja. Ég ætla ekki að gera að umræðuefni hér í þessu andsvari afstöðu mína til þessara ríkisstyrkja almennt. Hins vegar gerði ég á síðasta þingi athugasemdir við að það væri verið að gera þá breytingu á þessum styrkjum að það væri verið að draga úr þeim til stærstu fjölmiðlanna, sem einhverjir myndu kannski kalla einu alvörufjölmiðlana, a.m.k. var Morgunblaðið þar á meðal, og það var mikil umræða um það hvort þarna væri verið að fara í einhverja refsiaðgerð gagnvart Morgunblaðinu sem flutti fréttir af ýmsum málum einhvers þingmanns hér. Það er nú liðin tíð en því var haldið fram að svo væri ekki, það væri verið að breyta kerfinu og til stæði að koma í haust með frumvarp með gagngerri endurskoðun á þessu fyrirkomulagi. Það varð hins vegar úr að þetta mál var ekki samþykkt á síðasta þingi eins og rakið hefur verið. Ég hlýt þess vegna að spyrja: Hvaða vinna hefur farið fram frá þeim tíma í allt sumar í þeim tilgangi að leggja fram þetta frumvarp sem var boðað hér í haust? Hefði þá ekki verið eðlilegt að bíða aðeins með þetta frumvarp og koma þá með annað frumvarp þar sem a.m.k. væri þá ekki, eins og í þessu frumvarpi, þessi skerðing eða verið að hrófla við einhverri innbyrðisskiptingu á þessum styrkjum til fjölmiðlanna?