157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[18:05]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég veit að unnið hefur verið að endurskoðun þessara laga, þessara styrkja og gert er ráð fyrir að lagt verði fram frumvarp sem lýtur að því verkefni síðar á þessu löggjafarþingi. Þeirri vinnu miðar vel. Það sem þetta frumvarp snýst um er kannski fyrst og fremst að brúa bilið þangað til nýtt fyrirkomulag tekur gildi vegna þess að það skiptir miklu máli upp á fyrirsjáanleika, ekki síst fyrir smærri fjölmiðla og héraðsfréttamiðla. Svo er þessi breyting á hlutfalli með þessu þaki sem hv. þingmaður nefndi, sem snýst fyrst og fremst um að nýta þessa takmörkuðu fjármuni sem best. Hvernig stilla á þessi hlutföll til frambúðar er þá viðfangsefni þeirrar vinnu sem núna er í gangi. En eins og ég segi, þetta tiltekna frumvarp snýst bara um að brúa bilið á þessu ári einmitt til að gefa þá ráðuneytinu núna fyrst um sinn meiri tíma til að vinna þetta og svo í framhaldinu gefa þinginu góðan tíma til þess að fara yfir þetta og taka afstöðu til þess hvernig við viljum haga fjölmiðlastuðningi til framtíðar.