157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[18:10]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil kannski benda á í þessu samhengi að það er ekki þannig að hér sé í fyrsta skipti verið að hrófla við því hvernig þetta þak er ákvarðað. Það hafa ýmsar breytingar verið gerðar á þaki þessa stuðnings frá því að farið var fyrst að veita stuðning sem þennan. Þetta frumvarp er nákvæmlega eins og það er búið að liggja fyrir frá því að þetta var kynnt á síðasta þingi, þannig að ég held að það sé heldur ekki verið að raska neinum fyrirsjáanleika. Er þakið 22% eða 25% af styrkhæfum rekstrarkostnaði? Ég held að svoleiðis tölur upp eða niður skipti ekki sköpum fyrir rekstur stórra fjölmiðla. Ég er eiginlega alveg sannfærður um það. Ég held að allir geti vel við unað þótt stuðningurinn sé takmarkaður með þessum hætti til þeirra stærstu. Svo er það auðvitað viðfangsefni áfram, ég veit að það verður lögð fram fjölmiðlastefna í nóvember og svo kemur frumvarp til nýrra laga um fjölmiðlastuðning. Ég held að það komi samkvæmt þingmálaskránni í janúar. Þá gefst tækifæri til að ræða þetta meira, hvernig við viljum hafa þetta til frambúðar. En ég deili ekki áhyggjum hv. þingmanns af þessu og þá sérstaklega með hliðsjón af því að þetta hefur legið fyrir í marga mánuði og felur ekki að mínum dómi í sér sérstaka röskun á rekstrarforsendum fjölmiðla.