fjölmiðlar.
Forseti. Hæstv. ráðherra minntist á að hér þyrfti að vera faglegt umhverfi, ég man ekki nákvæmlega orðalagið, hjá fjölmiðlum. Það liggur alveg fyrir að það sem hann telur faglegt er mögulega ekki það sama og ég tel faglegt þannig að við erum komin með einhvers konar veruleika þar sem verður mjög erfitt að byggja upp traust á þessu frumvarpi. Það liggur líka fyrir að við vorum með ráðherra sem nánast hótuðu ákveðnum miðlum hérna og það liggur fyrir að framlög til þeirra sömu miðla og er búið að hóta virðast skerðast. Þannig að ef við tölum bara hérna á íslensku þá er, held ég, mjög erfitt fyrir almenning að treysta því að sú þriggja manna úthlutunarnefnd sem ráðherra skipar geti verið algjörlega óháð ráðherra og ríkisstjórninni, enda er það kannski ekki tilgangurinn. Nú liggur líka fyrir að þessi ríkisstjórn er mjög tengd ákveðnum fjölmiðlum, mjög. Hæstv. ráðherra var sjálfur að vinna á ákveðnum fjölmiðli. Aðstoðarmenn hér í húsi eru frá ákveðnum fjölmiðlum. Þeir koma ekki frá þeim miðlum sem á að skerða útgjöld til. Ég er kannski á svolítið svipuðum stað og hv. þm. Sigríður Á. Andersen: Viljum við vera að fara í þetta milliskref þegar það liggur fyrir að traustið er ekki mikið fyrir fram? Getur hæstv. ráðherra svarað því, hvernig telur hann að fólk geti treyst ákvörðunum þessarar þriggja manna nefndar?