fjölmiðlar.
Virðulegi forseti. Ég vil benda á það í þessu samhengi að fyrirmynd þessa kerfis er norræn, en kerfið er aðlagað að íslenskum aðstæðum, og það er skipað í þessa nefnd samkvæmt tilnefningum. Það er ekki ráðherra sem hefur fullkomið geðþóttavald að því leytinu til. Ég nefndi Norðurlöndin vegna þess að það eru einmitt þau ríki þar sem fjölmiðlafrelsi almennt mælist hvað hæst í heiminum og þar er stuðningskerfi fjölmiðla svona nokkurn veginn í þá veru sem er fest í sessi á yfirstandandi ári í þessu frumvarpi. Svo er það alltaf smekksatriði hvenær fjölmiðlar eru faglegir eða ekki. Ég held að við viljum styrkja fjölmiðla óháð því og reyna að búa til eins almennt og hlutlægt kerfi og mögulegt er til þess að beina stuðningi til fjölmiðla, við viljum líka styrkja fjölmiðla sem einhverjum gæti þótt svona groddalegir. Þetta er alltaf matsatriði. En þetta er mikilvægt upp á aðhaldið gagnvart okkur m.a. sem vinnum í þessu húsi.
Þessi breyting á hlutföllunum er eitthvað sem er búið að ræða fram og til baka og hefur legið fyrir frá því fyrir löngu. Ég get ekki tekið undir það og ég man ekki til þess að neinn ráðherra hafi nokkurn tíma haft í neinum hótunum við fjölmiðla, en vissulega voru óheppileg orð látin falla. En menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra er ekki svo smár að ætla að beita fjölmiðlastuðningi til að refsa ákveðnum miðlum. Svoleiðis gerum við ekki.
Að því sögðu þá vonast ég eftir stuðningi við þetta mál sem ég held að sé mjög mikilvægt einmitt til að brúa bilið fyrir ekki síst smærri fjölmiðla og héraðsfréttamiðla o.s.frv.