fjölmiðlar.
Forseti. Ég þakka svarið. Hæstv. ráðherra segir að hann trúi ekki að fjárstuðningi muni verða beitt til að refsa ákveðnum miðlum. En það er þá ansi mikil tilviljun því að sumir miðlar eiga núna að fá minna úthlutað, það er ákveðin tilviljun.
En mig langaði að spyrja um annað hérna í seinna andsvari. Það er varðandi 8. skilyrðið fyrir rekstrarstuðningi, að fjölmiðlaveita hafi ekki verið í fjárhagserfiðleikum í lok næsta árs á undan. Mig langar að velta því upp, í ljósi þess að það er verið að fara af stað með þetta af því að rekstrarumhverfi fjölmiðla er erfitt, að það er kannski ekki ólíklegt að þeir hafi verið að lenda í veseni og þess vegna langar mig að heyra frá ráðherra hvort það kunni að vera að þetta sé of íþyngjandi. Það er alveg möguleiki að þegar úthlutun fer fram að tiltekin veita sem féll ekki undir þessa 8. gr., var sem sagt í fjárhagserfiðleikum, sé búin að koma sér á betri stað. Mögulega mætti skoða líka að þó að hún sé í einhverjum smá fjárhagserfiðleikum þá séu styrkirnir, ef þeir dekka það, dregnir frá mögulega opinberum gjöldum sem viðkomandi skuldar. Ég myndi vilja heyra aðeins um sýn ráðherrans á þessu máli.