157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[18:19]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf):

Frú forseti. Ég vil þakka ráðherra fyrir sína ræðu við framlagningu þessa máls og einnig í umræðu sem skapaðist í framhaldinu af því. Eins og ljóst er þá er þetta mikilvægt mál en líka mjög tímaháð því að það er alveg ljóst að þeir fjölmiðlar sem hafa fengið styrki undanfarin ár hafa gengið út frá því í sínum rekstri að fá líka styrki á þessu ári. Þess vegna er mikilvægt að við afgreiðum þetta mál, tel ég, og komum því í gegn til að hægt sé að koma því til úthlutunarnefndar því að það mun taka hana margar vikur að vinna úr þeim umsóknum sem berast og fara yfir öll gögn til að geta síðan staðfest að viðkomandi aðilar eigi rétt á þeim styrkjum sem þeir geta þá fengið.

Við fjölluðum ítarlega um þetta mál á síðasta þingi og umræðan í nefndinni endurspeglaðist dálítið í þeim andsvörum sem hæstv. ráðherra fékk við framlagninguna. Við fengum til okkar gesti frá Blaðamannafélaginu og frá mörgum fjölmiðlum, stærstu fjölmiðlunum, líka minni staðbundnum fjölmiðlum og fleiri aðilum, og ég vísa til þess að á vef Alþingis eru öll gögn nefndarinnar frá þessari umfjöllun og allar þessar umsagnir sem voru mjög góðar. Þetta frumvarp snýst fyrst og fremst um að halda áfram stuðningnum við einkarekna frétta- og dagskrármiðla vegna kostnaðar sem fellur til við miðlun frétta og fréttatengds efnis, við umfjöllun um samfélagsleg málefni og snýr að árinu 2025.

Virðulegur forseti. Það er lagt til að það verði tekinn aftur upp í lög um fjölmiðla kafli þar sem fjallað er um stuðning við einkarekna fjölmiðla en ákvæði kaflans féllu úr gildi 1. janúar 2025 og ekkert stuðningskerfi í sjálfu sér í gildi núna. Eins og fram kom í máli ráðherra er vinnan við endurskoðun kaflans í gangi og markmiðið var að koma með frumvarp nú á haustþinginu og þá hefði verið hægt að ljúka þessum stuðningi við málið því að það er alveg ljóst að þetta er þannig mál að við myndum aldrei vilja fá fulla endurskoðun á málinu hér inn á haustmánuðum með það á bakinu að þurfa að afgreiða það fyrir áramót til þess að fjölmiðlarnir fengju þennan styrk á þessu ári, þannig að ég held að það sé skynsamleg leið, sem er farin, að koma með þetta frumvarp inn aftur og síðan er það í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar frá ráðherra að í janúar 2026 komi nýtt framtíðarfyrirkomulag þessa stuðnings.

Það kom í ljós í vinnu nefndarinnar og hefur kom í ljós í ræðum þingmanna þegar þetta mál var hér til umræðu á síðasta þingi, og á örugglega eftir að koma í ljós hér í kvöld, að það eru mjög skiptar skoðanir um frumvarpið, um styrki til einkarekinna fjölmiðla og kannski ekki síst hvaða fjölmiðlar það eru sem eiga að fá styrk og hve mikinn. Hvaða kröfur eiga þessir fjölmiðlar að uppfylla? Þess vegna legg ég áherslu á það að þessu máli verði vísað sem fyrst til allsherjar- og menntamálanefndar til að við getum hafið þá vinnu sem þarf því miður að gerast dálítið hratt núna til þess að þeir fjölmiðlar sem hafa gert ráð fyrir því í sínum rekstri þetta árið fái þessar greiðslur og hjá þessum millistóru fjölmiðlum er oft um að ræða jafnvel heilt stöðugildi sem liggur hér undir og hjá stærri fjölmiðlum jafnvel enn þá meira.

Í sambandi við frumvarpið í sjálfu sér er mikilvægt að horfa til þess sem fram kemur í greinargerð um mikilvægi fjölmiðla í lýðræðissamfélagi og þýðingu þess að hér starfi traustir, óháðir og stöðugir fjölmiðlar, sérstaklega á tímum mikillar upplýsingaóreiðu sem aukist hefur með auknum vinsældum samfélagsmiðla. Mitt mat er því það að það sé ákaflega áríðandi að styrkja fjölmiðla til að hér starfi fjölbreyttir og sjálfstæðir fjölmiðlar sem miðla ólíkum sjónarmiðum. Slíkur stuðningur er þýðingarmikill fyrir rekstur fjölmiðla, einkum minni fjölmiðla á landsbyggðinni. Það er mikilvægt að hafa í huga, þegar menn eru að tala um breytingar á þakinu, að það var fyrst og fremst gert til þess að minni fjölmiðlar á landsbyggðinni fengju hærri styrki.

Í umfjölluninni og í því meirihlutaáliti sem fyrir liggur á vef Alþingis töldum við mikilvægt að efla enn frekar staðbundna fjölmiðla. Einnig er mjög mikilvægt í þessu, og þegar við förum í umræðuna um endurskoðun á þessum lögum, staða íslenskrar tungu og mikilvægi þess að fjölmiðlar séu hluti af þeirri baráttu sem við stöndum í á hverjum degi fyrir tilvist íslenskrar tungu. Þess vegna held ég að það sé eitt af því sem við þurfum að skoða í þessu þegar þetta frumvarp kemur fram. Nú vek ég athygli á því að frumvarpið sem boðað er í janúar er ekki enn komið í samráðsgátt stjórnvalda þannig að það er greinilega enn verið að vinna að frumvarpinu og tækifæri til að hafa áhrif á það og umræðan í nefndinni mun vonandi að einhverju leyti endurspeglast inn til ráðuneytisins í þeirri vinnu.

Eins og fram kom hér áðan er verið að lækka hámarksstuðning til hvers umsækjanda niður í 22% úr 25%. Fyrir stærstu miðlana munar þetta einhvers staðar í kringum 10–15 milljónum sem þeir eru að fá samkvæmt því sem okkur sýndist við útreikningana. Það eru fyrst og fremst tveir fjölmiðlar sem þetta bitnar á. Það er annars vegar fjölmiðlasamsteypan Sýn og hins vegar Árvakur sem gefur út Morgunblaðið. Aðrir fjölmiðlar njóta góðs af þessu og það dreifir stuðningi jafnar milli umsækjenda. Ég held að þetta séu góðar breytingar og ég held að það sé rétt að styrkja rekstur fjölmiðla, staðbundinna fjölmiðla, verulega og við sem landsbyggðarþingmenn sjáum það bara hversu mikilvægir miðlar þetta eru, bæði til þess að miðla ástandi og því sem er að gerast í nærsamfélaginu en líka til að draga t.d. fram fréttir héðan úr þinginu sem snúa beint að þessu. Það er líka mikilvægt að í umgjörðinni og kröfunum sem eru á miðlun þessara upplýsinga á fjölmiðlana sé ljóst að þeir séu að miðla upplýsingum. Við þurfum líka að skoða kröfurnar sem eru gerðar um rekstrarumhverfi þessara fjölmiðla í þessu. Við sjáum jafnvel miðla sem eru að standa sig mjög vel en uppfylla ekki endilega kröfurnar um fjölda starfsmanna og annað slíkt sem þarf þá hugsanlega að endurskoða í þessu nýja lagafrumvarpi sem kemur.

Rekstrarumhverfi fjölmiðlanna verður æ flóknara og brothættara, m.a. vegna þeirra tækniframfara og þróunar sem hefur átt sér stað. Sérstakt vandamál í þessum efnum er breytt hegðun auglýsenda á íslenskum auglýsingamarkaði. Þeir kjósa í auknum mæli að eiga viðskipti við erlend stórfyrirtæki í stað innlendra fjölmiðla. Við fengum nokkuð góða brýningu í umfjöllun nefndarinnar um þetta atriði, það sem snýr að okkur stjórnmálafólkinu. Okkur voru sýnd nokkur dæmi um það þar sem stjórnmálafólk, m.a. ég, var að halda fundi úti á landi og við auglýstum þá fyrst og fremst á samfélagsmiðlum. Við erum oft að senda greinar í þessa staðbundnu fjölmiðla og fá þær birtar en á sama tíma erum við ekki tilbúin til að kaupa eina litla auglýsingu til að auglýsa fundinn okkar heldur notum við samfélagsmiðlana fyrst og fremst, þannig að þetta var góð brýning til okkar sem erum að vinna mikið með þessa staðbundnu fjölmiðla með að birta okkar greinar, okkar skoðanir í þeim, að þegar við erum að standa fyrir einhverjum viðburðum kaupum við líka af þessum fjölmiðlum auglýsingar í stað þess að nota samfélagsmiðlana þótt við séum ekkert endilega að borga fyrir auglýsingarnar þar þá erum við bara að birta þetta á okkar eigin síðum.

Það er líka mikilvægt að í boðuðu frumvarpi um málið verði farið í heildarendurskoðun á ákvæði kaflans með það að leiðarljósi að tryggja viðeigandi stuðning við innlenda fjölmiðla til framtíðar svo hér geti starfað fjölbreyttir og sterkir fjölmiðlar. Það var margt í umsögnum um frumvarpið sem bárust allsherjar- og menntamálanefnd á síðasta þingi sem getur gagnast við þá endurskoðun og hvet ég menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti til að kynna sér þær vel og nýta sér þær ábendingar sem þar koma fram.

Eins og fram hefur komið er mjög brýnt að frumvarpið verði að lögum hið fyrsta svo að fjölmiðlar geti hlotið stuðning fyrir árið 2025. Þau sjónarmið komu fram fyrir nefndinni að afkoma sumra fjölmiðla væri beinlínis háð því. Í greinargerð með frumvarpinu kemur einnig fram að margt bendi til þess að brottfall styrkjakerfis geti haft veruleg og neikvæð áhrif á rekstrarumhverfi fjölmiðla, leitt til samdráttar og fækkunar á fjölmiðlamarkaði og þar með skaðað samkeppni og fjölbreytni í miðlun.

Eins og ég nefndi líka áðan mun fjölmiðlanefnd, eftir að frumvarpið verður að lögum, þurfa tíma til að auglýsa eftir umsóknum og afgreiða þær svo hægt verði að greiða styrkinn fyrir áramót.

Síðan er það aftur bara þetta að það er alveg ljóst að það eru skiptar skoðanir um þetta og það er þörf fyrir mikla umræðu um styrki til einkarekinna fjölmiðla sem ég vona að við munum eiga tækifæri til að eiga gott samtal um í þingsal þegar það frumvarp kemur fram. En aftur legg ég áherslu á að þessu frumvarpi verði sem fyrst vísað til vinnu í allsherjar- og menntamálanefnd til að við getum klárað þá styrki sem gríðarlega margir fjölmiðlar og þar af leiðandi mikið af starfsfólki bíður eftir að verði afgreiddir til að rekstur þeirra verði ekki verri á þessu ári en búast mátti við.