157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[18:38]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir prýðisgóða yfirferð í þessu máli. Hann vék að mörgum áhugaverðum punktum og mig langar að grípa hér í fyrri umferð einn þeirra sem varðar áhrif á landsbyggðina. Ég tek undir það sem kom fram í erindi hv. þingmanns að ég tel að það sé auðvitað gott að það séu héraðsfréttamiðlar vítt og breitt um landið sem njóta góðs af þessu og það er vel. En mig langar að spyrja hv. þingmann að því, að í raun og veru fer þó kannski hæsta hlutfallið til miðla sem skilar sér að óverulegu leyti út á land, þ.e. af þeim hluta miðla sem ekki verða fyrir neinni skerðingu vegna þessara breytinga. Það eru miðlar sem starfa hér á suðvesturhorninu og hvort sem þeir eru á prenti eða ljósvakamiðlar þá drífa þeir varla út á land í gamla kerfinu, það er að segja í hliðrænni útsendingu. Vissulega er hægt að nálgast ýmislegt í stafrænni útsetningu en hitt er þó í gangi enn þá og fólk er að sækja sér upplýsingar og fréttir með því að hlusta á ljósvakamiðlana.

Mig langar líka að spyrja þingmanninn hvort við getum ekki fallist á það að við höfum í upphafi, þegar þetta ferli allt saman fer af stað, þ.e. að hálfpartinn ríkisvæða einkarekna fjölmiðla, þá höfum við byrjað á öfugum enda af því að við þorðum ekki hér í þessum sal að ávarpa fílinn í stofunni. Samkeppnin við stóra bróður, við Ríkisútvarpið, er einfaldlega óvinnandi vegur og til að komast hjá því að taka á þeim vanda þá fjölgum við bara þeim sem eru á framfærslu ríkisins. Þess vegna langar mig hér í fyrri ferðinni að spyrja hv. þingmann hvort hann geti tekið undir með mér í því mati mínu að við höfum byrjað á öfugum enda.