157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[18:40]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir ágætisandsvar. Ég hef af því áhyggjur að þessir miðlar, Sýn og Árvakur, muni minnka sinn fréttaflutning af landsbyggðinni því að það liggur bara í hlutarins eðli að rekstur er þannig að þú þarft að sníða þér stakk eftir vexti, þannig að heildaráhrif frumvarpsins gætu á endanum orðið minni fréttaflutningur af landsbyggðinni.

Hin spurningin sem hv. þingmaður kom með varðandi á hvaða enda ætti að byrja, þá held ég að Sjálfstæðisflokkurinn sé sammála því meira og minna allur, ef ekki bara allur, að það þarf að gera eitthvað í þessu með Ríkisútvarpið. Það var rætt í nefndinni og vonandi birtist það í þessari heildarendurskoðun á styrkjum og þessu frumvarpi sem á að koma varðandi RÚV, að það verði gert eitthvað í þeim málum þannig að við séum ekki að fjölga einkareknum fjölmiðlum á ríkisspenanum. En þetta er alveg snúið mál því að það eru auglýsingatekjur sem Ríkisútvarpið hefur sem er ekki endilega tryggt að fari til annarra íslenskra fjölmiðla ef þær verða teknar af. Þetta verður þá alla vega að vera gert þannig að innlendir fjölmiðlar njóti góðs af þeim aðgerðum sem vonandi verða gerðar með tilliti til RÚV. Þá tek ég undir orð formanns allsherjar- og menntamálanefndar, þá er ég hugsa um íslenskuna, að það skiptir máli að það séu vandaðir fjölmiðlar sem skrifa gott mál og menn geti lesið góða íslensku en séu ekki bara í einhvers konar örlestri á fyrirsögnum sem hinir og þessir skrifa.