157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[18:44]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sitt seinna andsvar. Hann tekur í raun undir áhyggjur mínar sem ég var með í ræðu minni yfir því að þessir stærstu miðlar sem ná um allt land og hafa verið að flytja fréttir af landinu öllu, þeir einir lendi undir þessum niðurskurðarhnífi. Varðandi fréttir af landsbyggðinni fyrir alla landsbyggðarmenn — það getur vel verið að fréttaflutningurinn á Ólafsvík aukist með aðeins sterkara blaði þar — sem búa að sjálfsögðu úti á landi, þá held ég að með því að höggva í þessa stóru miðla, einu miðlana sem geta með einhverjum hætti veitt Ríkisútvarpinu samkeppni, muni heildarfréttaflutningur af landsbyggðinni minnka sem er ekki markmið þessa frumvarps.

Varðandi fréttaflutning og áherslur í fréttaflutningi, auðvitað er erfitt kannski fyrir einhverjar fjölmiðlanefnd að ritstýra því en það er alveg ljóst að það er alls konar ólíkur fréttaflutningur eftir miðlum og þrátt fyrir að þeir segjast vera óháðir er fréttaflutningurinn töluvert bjagaður oft að mínu mati. Alls konar fólk er kallað annaðhvort öfga þetta eða öfga hitt í allar áttir sem öðrum finnst ekkert öfga en það er kannski önnur umræða og kannski ekki hluti af þessu máli. En ég óttast að heildarfréttaflutningur af landsbyggðinni komi til með að minnka við þetta högg sem þessir tveir stóru miðlar fá.