fjölmiðlar.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Í fljótu bragði er svarið nei. Ég held að þessi stóru miðlar, Sýn og Árvakur hafi meiri burði, ef þeir hefðu fengið þennan fullan styrk eins og þeir fengu árið áður, til þess að flytja fréttir af allri landsbyggðinni jafnt og þétt. Auðvitað er hægt að styrkja einhverja héraðsmiðla og þeir eru mögulega sterkari einhvers staðar með einhverjar milljónir í viðbót en grunnpunkturinn er þessi: Segjum að það sé ekki fréttamiðlun á einhverju svæði, t.d. Hornafirði, það er ekkert blað þar. Það er ekkert endilega hvetjandi fyrir það fólk sem langar að flytja fréttir af því svæði ef það þarf að uppfylla ákveðnar kríteríur til að þiggja styrkinn, en passar ekki alveg inn í þær. Ef ég væri bara einn þarna og mig langaði að gera eitthvað og ég myndi hlaupa um allt og skrifa fréttir, væri góður í íslensku og myndi leggja líf mitt og sál í þetta, þá er ekki möguleiki fyrir mig að þiggja styrk. Þá er þetta ólíklegra. Ég horfi kannski á næsta bæjarfélag þar sem er einhver miðill og hann þiggur styrkinn. Það er ákveðin sjálfsbjargarviðleitni ef þú ert kominn með fasta innkomu, óháð því hvernig fréttir þú flytur, óháð því hversu vandað þetta er, íslenskan í þessu. Það held ég að sé bara ákveðin lamandi hönd á markaðinn sem slíkan. Síðan er þessi grundvallarspurning með jaðaráhrifin, (Forseti hringir.) hvort það verði meiri fréttir af landsbyggðinni eða ekki. Ég held ekki. Ég held vissulega að mögulega styrkist þessir miðlar. Maður getur séð þennan lista, þú getur kallað hann fram, hverjir eru að fá þessa styrki. Þetta eru nokkur bæjarfélög en það er fullt af öðrum bæjarfélögum sem eru ekki með neitt þannig að bæði Árvakur og Sýn fjalla um þau bæjarfélög. (Forseti hringir.) Nú á að taka þann pening af þeim bæjarfélögum. Þannig að bæði stutta svarið og langa er nei.