fjölmiðlar.
Virðulegi forseti. Það er gaman að velta þessu fyrir sér. Auðvitað er ekki hægt að slá neinu föstu í þessum efnum en ég veit að það er áherslumál hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra að styrkja staðbundna fréttamiðlun og mig grunar mig að þetta hafi verið hugsað sem skref í þá átt. Þetta hefur svolítið verið þróunin, veit ég, á Norðurlöndunum. Ég var nú bara að fara yfir þetta hérna áðan að t.d. í Noregi er það þannig að stærsti einkarekni fjölmiðillinn í Noregi fær enga styrki og það eru sérstakir viðbótarstyrkir til staðbundinna miðla í t.d. Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Nú er ég ekki ráðherra fjölmiðlamála en maður veltir fyrir sér hvort það ætti kannski að stefna svona svolítið í þá átt að vera með einhvers konar sjóði til að styðja við fréttaflutning af landsbyggðinni og þá má velta fyrir sér hvort eitthvað slíkt væri ekki skilvirkara tæki til þess að styðja við fréttaflutning stærri miðla af málefnum landsbyggðarinnar frekar en að veita háa styrki án nokkurra skilyrða, styrkja þá frekar stærri miðla þegar kemur að því að halda úti stöðugildum úti á landi o.s.frv. En þetta eru allt saman athyglisverðar spurningar sem við hljótum að velta fyrir okkur saman þegar við neglum í lög einhvers konar framtíðarfyrirkomulag þessara mála síðar á þessu löggjafarþingi.