fjölmiðlar.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Í því var kannski engin spurning, frekar vangaveltur ráðherrans sem eru bara ágætar og gott að koma hreyfingu á málið og hugsa kannski mögulega í einhverjum nýjum víddum og vinklum í þessum málum. Að ákveðnu leyti er það þannig fyrir okkur öll sem bara mannfólk að ef við erum komin með einhvers konar fastar tekjur án þess að það sé krafa endilega um vandað innihald — nú er ég ekki að segja að sé óvandað innihald í þessum fjölmiðlum — þá á til að hlaupa í mann ákveðin værukærð. Það vantar kannski ákveðinn drifkraft sem ég tel að allir hafi gott af að hafa, það sé ekki bara endanlegur hvati, það sé búið að uppfylla skilyrðin. Það er kannski erfitt að búa til einhvers konar reglur um það hvað eigi að vera í fjölmiðlum, það er ekkert hægt. En útgangspunkturinn er sá að við þurfum fjölmiðla sem eru óháðir, flytja hlutlægar fréttir, geta greint rétt frá röngu, séð falskt frá réttu og birt það eins hlutlægt og hægt er án bjögunar. Þannig fjölmiðlar eru góðir og hvað þá varðandi íslenskuna, við eigum í vök að verjast með hana. Við komumst að einhverju góðu í nefndinni þegar heildarendurskoðunin kemur fram. En ég held að ég hafi fært ágætisrök fyrir því að við hefðum átt að hafa þetta óbreytt fyrst við erum að styrkja fjölmiðla á annað borð.