157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[18:55]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu hans og þátttöku í umræðum hér í þingsal. Það dylst engum að rekstrarumhverfi íslenskra fjölmiðla er erfitt, róðurinn þungur og það er dýrt að halda úti fréttaflutningi hér á landi. Þá kemur upp spurningin hvað beri að gera. Eðlilegast væri auðvitað að taka Ríkisútvarpið út af auglýsingamarkaði og gera íslenskum fjölmiðlum kleift að eiga í eðlilegri samkeppni við sína helstu samkeppnisaðila þegar kemur að tekjuöflun, en það eru jú samfélagsmiðlarnir. Hér er sem sagt þessi hugmynd sem varð að lögum um að ríkið hefði afskipti af starfsemi fjölmiðlanna með því að veita þeim styrki. Ég hygg að við sem eigum sæti á Alþingi þurfum að gæta sérstakrar varúðar þegar kemur að afskiptum stjórnmálamanna, hvort heldur sem er af fjölmiðlum eða starfi stjórnmálaflokka, því inngrip í frjálsa fjölmiðlun getur verið hættulegt, hvort heldur um er að ræða ívilnun eða einhvers konar íþyngjandi aðgerðir. Afskipti stjórnmálamanna af frjálsum fjölmiðlum eru í eðli sínu áhættusöm og ég óttast að endingu að heildaráhrifin geti hreinlega verið neikvæð. Það er erfitt að eiga við þessi mál og halda vel á þeim. Þá er aðalatriðið og kannski verkefni okkar sem sitjum hér inni: Hvað getum við gert til að takmarka þessi neikvæðu áhrif af afskiptum stjórnmálamanna? Útgangspunkturinn í þeirri vegferð hlýtur alltaf að þurfa að vera að koma í veg fyrir geðþóttaákvarðanir, skapa almennan ramma sem minnkar líkurnar á því að einhver freistist til þess að fara að misbeita þessu valdi.

Hér hefur það verið útfært í þessum lögum um styrki til einkarekinna fjölmiðla sem nú stendur til að breyta. Ásteytingarsteinninn sem má greina af umræðum hér í þingsal er auðvitað þessi lækkun á þakinu, að færa það niður úr 25% í 22%. Því miður, og það er auðvitað að einhverju leyti hryggilegt, þá er óhjákvæmilegt að líta til aðdragandans. Aðdragandinn er sá að áður en mál þetta kom fram þá voru viðhöfð mjög óheppileg ummæli af stjórnarmeðlimum sem voru ósáttir við fréttaflutning einstakra fjölmiðla og fannst eðlilegt að beita þeim tækjum sem þeir hafa til að lækka þessa styrki sem hér eru til umræðu. Það er rétt, eins og hefur komið fram, að hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra steig af krafti inn í þá umræðu og leiðrétti hvað ríkisvaldinu gengur til með þessum hugmyndum. En eftir stendur samt ásýnd þessa máls, hún er ekki góð þegar litið er á aðdragandann, ummæli einstakra stjórnmálamanna og svo aðgerðirnar, frumvarpið sjálft sem miðar að því að lækka styrki m.a. til þess fjölmiðils sem hv. þingmanni mislíkaði og svo annarrar fréttastofu, Sýnar. Ég vil bara ítreka þetta varðandi ásýndina af því þetta skiptir sannarlega máli. Ég er ekkert svo viss um að þetta ferli frá A til Ö, þegar það verður gaumgæft, verði t.d. til þess fallið að færa Ísland upp á þeim lista sem getið er um í greinargerð með frumvarpinu: Ísland skipar 18. sæti á lista alþjóðasamtakanna Blaðamanna án landamæra, þar skipar Ísland 18. sæti listans. Eitt af markmiðum með þessum styrkjum og því kerfi sem við höfum er að tryggja frjálsa fjölmiðlun en ég ítreka það bara að ásýnd þessa máls er því miður mjög óheppileg og það verður áhugavert að sjá hvort Ísland færist ofar eða neðar á þessum lista.

Varðandi önnur tæknilegri atriði frumvarpsins þá held ég að það sé rétt og nauðsynlegt að fara stuttlega yfir þau. Við lestur frumvarpsins verður ekki hjá því komist að sjá að það hyglir prentmiðlum. Uppleggið í frumvarpinu miðar að miklu leyti að hefðbundinni eða jafnvel gamaldags fjölmiðlun. Eins og kom fram í máli hæstv. ráðherra er uppleggið hér með þessari aðal efnislegu breytingu málsins um lækkun á þessu þaki, að nýta fjármunina sem best. Þá er, held ég, nauðsynlegt að horfa á það í hvað þessir fjármunir fara. Þarna eru mjög litlir fréttamiðlar, miðlar, staðbundnir miðlar að hluta, sem eru að fá styrki til sinnar starfsemi. Þarna eru líka stórir lögaðilar sem hafa það ekki einu sinni að aðalstarfsemi sinni að reka fjölmiðla heldur eitthvað allt annað. Það skýtur að nokkru leyti svolítið skökku við þegar maður horfir á þetta, að fyrirtæki sem hafa það ekki að aðalstarfsemi sinni að rækja fjölmiðlun séu að fá þessa styrki og einnig fjölmiðlar sem uppfylla ekki einu sinni skilyrði laganna um ritstjórnarlegt sjálfstæði. Við höfum hins vegar öfluga sjálfstæða fjölmiðla. Tveir þeirra eru yfir þessum stærðarmörkum og verða því fyrir þessu frumvarpi. Það er óheppilegt, sérstaklega í ljósi þess að nú liggur fyrir að til stendur að fara í heildarendurskoðun á þessu fyrirkomulagi.

Ég get tekið undir með hv. formanni allsherjar- og menntamálanefndar sem taldi að það væri skynsamleg leið að afgreiða fyrst einhvers konar framlengingu á þessu fyrirkomulagi á þeim knappa tíma sem er til stefnu til að geta veitt þessa styrki inn í rekstur þessara fjölmiðla og ráðast svo í heildarendurskoðunina í kjölfarið. Ég er auðvitað sammála þessu en þá hlýtur að vera affarasælast í framlengingunni, miðað við að við erum að framlengja þessi úrræði, að það sé ekki ráðist í ónauðsynlegar breytingar sem eru til þess fallnar að auka á rekstrarerfiðleika þeirra fjölmiðla sem við þurfum að treysta á.