fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Hér er enn á ný flutt frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, sem sagt frumvarp sem varðar ríkisstyrki til einkarekinna fjölmiðla. Ég vil bara nota tækifærið við 1. umræðu í þessu máli til þess að árétta það sem ég hef áður haldið á lofti í þessum þingsal, ekki bara á síðasta þingi þegar þetta tiltekna frumvarp kom fram heldur strax í upphafi þegar þessum ríkisstyrkjum var komið á, og halda á lofti sjónarmiði mínu að þetta sé röng nálgun á það vandamál, sem ég vissulega tek undir að er til staðar eða getur verið til staðar í einhverjum tilvikum, að margir fjölmiðlar eiga í vandræðum í sínum rekstri. Margt spilar þar inn í en fyrst og fremst stafar sá vandi af umfangi ríkisins á fjölmiðlamarkaði.
Ríkisútvarpinu er skammtað 7 milljörðum á ári í fjárlögum. Það hefur þess utan í tekjur, að mér skilst, hátt í 2 milljarða frá auglýsendum og allt þetta, fyrir utan auðvitað rekstraröryggið sem ríkisfjölmiðillinn nýtur, sem ætti auðvitað ekki að vera en það nýtur eðli málsins samkvæmt. Þeir sem geta gengið að sínu rekstrarfé vísu í fjárlögum hafa vissulega meira öryggi en aðrir sem þurfa að hafa fyrir því að afla sinna tekna. Allt þetta hefur haft í för með sér að ríkisrekstur Ríkisútvarpsins eirir í sjálfu sér engu á fjölmiðlamarkaði. Mönnum hefur verið mjög tíðrætt hér um að það þurfi að koma Ríkisútvarpinu af fjölmiðlamarkaði og þá skapist svigrúm fyrir einkarekna fjölmiðla og ég held að jafnvel sumir einkareknir fjölmiðlar trúi því að það geti verið alfa og ómega í lausn þeirra rekstrarvanda að koma Ríkisútvarpinu af auglýsingamarkaði. Þannig myndu þessir 2 milljarðar sem Ríkisútvarpið hefur smyrjast yfir á aðra fjölmiðla, einkarekna fjölmiðla. Ég er ekki sannfærð um að það verði svo, jafnvel þótt menn myndu fara í þá lagabreytingu sem mér skilst reyndar og heyrist að þessi ríkisstjórn hafi kannski hug á að gera, a.m.k. að skoða. Ég er ekki sannfærð um að þessir 2 milljarðar smyrjist yfir á einhverja einkarekna fjölmiðla, en auðvitað að einhverju leyti.
En það breytir því ekki að Ríkisútvarpið er í samkeppni við einkarekna fjölmiðla á miklu fleiri sviðum en bara um auglýsingatekjurnar, þessa 2 milljarða. Ríkisútvarpið er í samkeppni við einkarekna fjölmiðla um starfsfólk. Það er nú það fyrsta. Það segir sig sjálft að ríkisfyrirtæki sem er komið á jötuna í fjárlögum getur auðvitað boðið starfsfólki sínu miklu meira starfsöryggi en hvaða fyrirtæki sem er, ekki bara fjölmiðlar heldur önnur fyrirtæki líka. Mér hefur fundist menn líta fram hjá þessu stóra samkeppnismáli sem er það að Ríkisútvarpið eirir engu í mannauðsmálum, ef það mætti segja það þannig. Það keppir með óeðlilegt forskot við ekki bara einkarekna fjölmiðla heldur líka við fyrirtæki sem oft leita kannski að fólki sem hefur starfað í fjölmiðlum. Starfsfólk sem hefur starfað í fjölmiðlum er eftirsóttir starfskraftar á ýmsum öðrum vettvangi en í fjölmiðlum. Þetta er einn angi af þessu.
Ríkisútvarpið keppir líka við aðra fjölmiðla um dagskrárgerð almennt, t.d. um innkaup á efni til að sýna og keppir í innlendri dagskrárgerð líka. Menn skyldu ekki vanmeta þetta, að Ríkisútvarpið myndi eftir sem áður hafa úr miklu meira að spila þegar kemur að dagskrárgerð heldur en einkareknu fjölmiðlarnir. Ég vil bara nefna þetta af því að ég hef af því áhyggjur að menn haldi að það sé hægt að jafna leikinn með einhverjum hætti, annars vegar með þessu litla frumvarpi hér um 500 milljóna sporslur til einkarekinna fjölmiðla og hins vegar með því að ýja að því eða gefa einhvern ádrátt um það, eins og hefur verið gert, að taka RÚV af auglýsingamarkaði. Allt er þetta í rauninni að mínu mati bara einhver bútasaumur, verið að troða marvaðann í þessari umræðu og neita þar með að horfast í augu við rót vandans sem er umfang og umsvif ríkisins á fjölmiðlamarkaði.
Ég held að það væri enginn til hér á landi sem myndi leggja það til, ef við værum að finna upp fjölmiðla í dag, að ríkið myndi fara inn á þann markað. Miðað við alla þá tækni og mannauð sem við höfum og áhuga hjá fólki að reka fjölmiðla þá held ég að enginn myndi í dag leggja það til að það yrði stofnað ríkisútvarp, ríkissjónvarp, hvað þá ríkisútvarp með nokkrar útvarpsrásir, nokkrar sjónvarpsrásir, hlaðvarpsþáttagerð og samfélagsmiðlaþátttöku eins og þetta er orðið í dag, allt úr hófi fram og langt umfram það sem nokkur maður ætlaðist til þegar Ríkisútvarpið tók til starfa á sínum tíma og var stofnað á sínum tíma.
Þetta er vandi einkarekinna fjölmiðla. Það á við á fjölmiðlamarkaði eins og á öllum öðrum markaði þar sem við höfum borið gæfu til að draga ríkið úr rekstri. Tökum viðtækjasöluna á sínum tíma en ríkið var með sérstaka viðtækjaframleiðslu og -sölu. Símafyrirtækin. Ríkið var einrátt á símamarkaði og ætlaði að keppa við önnur fyrirtæki og einstaklinga á símamarkaði. Allt er þetta auðvitað hlægilegt í dag og menn hafa borið gæfu til þess að draga ríkið af þessum markaði. Það eru nokkur svona svið sem eru enn þá eftir af einhverjum misskilningi og fjölmiðlamarkaðurinn er þar á meðal. Það er auðvitað kominn tími til að menn horfist í augu við þetta og menn svari því.
Ég hef hins vegar margoft sagt það að ég veit að það er enginn pólitískur veruleiki eða raunveruleiki sem leyfir manni að vona það að ríkið dragi sig alfarið af fjölmiðlamarkaði á næstu mánuðum, jafnvel árum. Ég ætla þó að vona að það verði á næsta áratug, ég held að það gerist. Ég er sannfærð um að það gerist að ríkið muni draga sig af þessum markaði á næsta áratug. En ég held hins vegar að ábyrgir stjórnmálamenn eigi að fara að leggja drög að því og hrinda því í framkvæmd að ríkið dragi úr umsvifum sínum á þessum markaði og þá með öðrum hætti en að draga sig af fjölmiðlamarkaði. Dragi annaðhvort úr þátttöku á útvarps- eða sjónvarpsmarkaði, afmarki mun betur heimild til þáttagerðar eða efnistaka í dagskrárgerð og setji a.m.k. stofnuninni, Ríkisútvarpinu, stólinn fyrir dyrnar þegar kemur að nýjum útsendingarháttum eða nýjum miðlum, t.d. samfélagsmiðlum og hlaðvarpsgerð. Við erum ekki komin á enda í þeirri þróun, það er eitthvað nýtt að koma á morgun. Það þarf að liggja alveg fyrir að ríkið sé ekki að fara að henda sér í það líka á þessum fjölmiðlamarkaði. Þetta finnst mér brýnast að Alþingi hugi að á næstu misserum en ekki vera með langt mál um 500 millj. kr. ríkisstyrki til einkamiðla til að koma þeim á jötuna.
Ég hef bent á það líka að með þessu skapist óeðlileg tengsl stjórnmálamanna við fjölmiðla og við höfum séð hvernig það hefur þróast fyrr á þessu ári þegar þingmenn og ráðherrar hafa hnýtt í fréttaumfjöllun einstakra einkarekinna fjölmiðla með gífuryrðum, fréttaumfjöllun um tiltekna flokka eða tiltekna stjórnmálamenn. Þegar það kemur síðan í kjölfarið frumvarp sem gerir ráð fyrir að skerða framlög, skerða styrkinn til þeirra fjölmiðla sem hafa haft þessa umfjöllun uppi, þá þarf enginn að vera hissa þó að það skapist tortryggni í garð stjórnmálamannanna og það sem verra er; í kjölfarið tortryggni í garð einkarekinna fjölmiðla að því leyti að það sækir að manni sú hugsun að fjölmiðlar stilli umfjöllun sína um tiltekna stjórnmálamenn eftir því hverjir halda um pyngjuna á hverjum tíma og með þeim hætti kannski að þeir hugi að því að vera ekki að styggja þá sem valdið hafa á hverjum tíma. Þetta frumvarp er einmitt þess vegna ekki heppilegt vegna þess að þarna er vikið frá þeirri framkvæmd sem hefur a.m.k. verið á undanförnum árum, með því að skerða framlögin til Morgunblaðsins og Sýnar sem eru þessir stærstu fjölmiðlar.
Svo er hægt að hafa einhver orð um alls konar furðulegheit hérna, margt sem ekki stenst nokkra skoðun í þessu frumvarpi. Hér er t.d. nefnt að frumvarpið stuðli að því að neytendur hafi aðgang að fjölbreyttum fjölmiðlum. Það er alveg tilefni til þess og málefnalegt að spyrja: Er það eðlilegt markmið að það séu fjölbreyttir fjölmiðlar? Væri ekki eðlilegt að hafa það markmið að það séu kannski fjölmiðlar sem flytja einhverjar fréttir, sem leggja vinnu í að flytja vandaðar fréttir? Auðvitað er þetta allt saman huglægt en a.m.k. fjölmiðlar sem halda úti raunverulegri fréttastofu, raunverulegri dagskrárgerð. Það mætti velta þessu fyrir sér.
Svo kemur hérna fram í niðurstöðu að það hafi ekki verið lagt mat á áhrif á jafnrétti kynjanna í þessu frumvarpi þannig að það kemur ekki fram. Það er fullyrt hér að ekki séu til kyngreind gögn fyrir einkarekna fjölmiðla. Ég dreg það reyndar í efa, ég held að það sé mjög auðvelt. Hafi menn áhuga á því að fá einhver kyngreind gögn um fjölmiðla þá held ég að það sé mjög auðvelt að særa þau fram, annað eins er nú sett fram þegar kemur að þessari kynjaumræðu sem er eins og hún er. En það er sem sagt ekki gert ráð fyrir því hérna að til séu kyngreind gögn um einkarekna fjölmiðla. Svo segir hér, og ég bara vek athygli á því, að í þessu frumvarpi séu ekki gerðar tilteknar kröfur er varða jafnrétti kynjanna sem forsendur fyrir stuðningi. Ég hlýt að spyrja: En í næsta frumvarpi? Getur það verið, að það verði þá kyngreint? Þetta eru allt einhverjir frasar og furðulegar fullyrðingar sem ég held að standist ekki skoðun eða a.m.k. eru ekki hafnar yfir gagnrýni.
Svo kemur hérna fram að þessi stuðningur sem hefur verið veittur í löndum sem nefnd eru hér, sem eru með svipaða styrki, hafi reynst fjölmiðlunum afar vel. En ekki hvað? Hverjum reynist ekki afar vel að fá bara pening upp í hendurnar, hvort sem það eru fyrirtæki eða einstaklingar?
Hér er líka nefnt að meðal þess sem talið er að hafa neikvæð áhrif á frelsi fjölmiðla — af því að menn leggja mikið upp úr frelsi fjölmiðla og það er svolítið vísað til þess í þessu frumvarpi þótt fyrir liggi að frelsi fjölmiðla er bara 100% hér á Íslandi. Hér er þó talið hvað varðar frelsi fjölmiðla að þar sé einhver agnúi eða hindrun smæð íslensks fjölmiðlamarkaðar, að smæðin hefti eitthvert frelsi án þess að það sé rökstutt. Og svo er sagt að erfið rekstrarstaða einkarekinna fjölmiðla í alþjóðlegu fjölmiðlaumhverfi hafi áhrif á frelsi fjölmiðla. En ég bara árétta: Það er hvorki smæð íslensks fjölmiðlamarkaðar eða erfið rekstrarstaða sem hefur áhrif á frelsið heldur er það umfang og umsvif ríkisins á fjölmiðlamarkaði. Ég legg til að þingið taki sér nú tak og fari að huga að þessu brýna máli á fjölmiðlamarkaði.