fjölmiðlar.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir hennar góðu ræðu. Þetta var góð ræða þar sem var farið um víðan völl og margt rætt sem okkur gefst vonandi betra tækifæri til þess að ræða þegar frumvörpin koma fram sem hafa verið boðuð, bæði um áframhaldandi styrki til einkarekinna fjölmiðla en ekki síður frumvarpið um RÚV sem við bíðum hér örugglega mjög mörg spennt eftir að sjá. Maður fer að verða afskaplega spenntur að sjá það koma í samráðsgátt stjórnvalda og hvað það boðar og hvernig það mun líta út. Það verður örugglega góð umræða í þingsalnum um það.
Það er kannski bara minn athyglisbrestur sem veldur því að ég náði samt ekki almennilega hjá hv. þingmanni afstöðu hennar til þessa máls sem við erum að fjalla um hér. Ég skil hennar skoðun, að þetta sé varhugavert og það séu hugsanlega aðrar lausnir í framtíðinni til að tryggja öll markmið þessa frumvarps. En mig langar að beina þeirri spurningu til þingmannsins hvort þessir valmöguleikar sem mér finnst við standa frammi fyrir; það er annaðhvort að samþykkja þetta frumvarp með einhverjum breytingum eða ekki eins og við gerum hér, að við tökum þetta inn í nefndina og vinnum þetta þar og úr því kemur eitthvað, eða hvort við eigum einfaldlega bara að bíða, leggja þetta frumvarp til hliðar og bíða fram á næsta ár og fá nýtt frumvarp þar sem þessi mál verða tekin í gegn, þá bæði í samhengi við stöðu RÚV og þá styrki til þessara einkareknu fjölmiðla, eða hvort við eigum að halda áfram að afgreiða þetta mál.