157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[19:21]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég fyrir mitt leyti hef aldrei stutt lög um styrki til einkarekinna fjölmiðla og ég mun aldrei gera það af því ég styð ekki nein áform um að koma einkaaðilum á ríkisjötuna eða atvinnurekstri á ríkisjötuna, svo það sé alveg skýrt. Hv. þm. Víðir Reynisson ræður hvað hann gerir, á það við sína samvisku hvort hann ætlar að styðja það.

Ég hef hins vegar bent á hvað varðar þetta tiltekna frumvarp að kveðið er á um í því að það sé mikilvægt að tryggja fyrirsjáanleika þessara aðila og það er vissulega búið að koma þessum fyrirtækjum á jötuna. Það er búið að koma þeim á jötuna og þessi fyrirtæki hafa auðvitað einhverjar væntingar, að það sé gefið á garðann áfram og menn hafa kannski stillt sinn rekstur samkvæmt því. Sérstaklega þess vegna finnst mér skjóta skökku við að í þessu frumvarpi eru allt í einu skertir styrkir til þessara stærstu fjölmiðla, til þeirra fjölmiðla sem kannski einna helst er hægt að kalla fjölmiðla á Íslandi, Morgunblaðið og Sýn. Hafa þessi fyrirtæki ekki líka væntingar? Hafa þessi fyrirtæki ekki líka gert ráðstafanir sem gera ráð fyrir óbreyttum ríkisstyrkjum? Það er búið að koma þeim á jötuna og af því að það er búið að gefa það út að fyrst búið er að segja A þá verði stjórnmálamennirnir sem sögðu A að segja B. Þess vegna finnst mér það afar ósanngjarnt að koma með þetta frumvarp með þessum hætti og það þýðir ekkert að segja: Ja, þetta var kynnt núna fyrr í sumar, við ætluðum að gera þetta síðasta vor. Það var líka óvænt og þetta er alveg jafn óvænt. Menn gera rekstraráætlanir ár fram í tímann, fyrirtækin gera það, eru búin að ráða fólk og annað. Þess vegna finnst mér það ósanngjarnt að hafa þetta með þessum hætti.