157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[19:23]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir hennar andsvar. Já, þeir stjórnmálamenn sem sögðu A ættu þá væntanlega að segja B. En það er nú bara þannig að þegar þetta var samþykkt á sínum tíma þá var hér önnur ríkisstjórn og aðrir við völd sem tóku þá ákvörðun. Þeir sem tóku þátt í að samþykkja þetta á sínum tíma munu þá væntanlega bara vinna með okkur í því að klára þetta mál og vinna síðan með okkur í framhaldinu, eins og ég hef talað hér um varðandi RÚV og stuðning við einkarekna fjölmiðla.

Ég held að það sé alveg skýrt að markmið breytingarinnar á frumvarpinu sé að dreifa þessum peningum meira heldur en gert er. Hvort það er gott eða slæmt, ég ætla ekkert að dæma um það. Maður gat ekki almennilega áttað sig á því í meðförum nefndarinnar á síðasta þingi. Það voru stórir landsbyggðarfjölmiðlar á þann mælikvarða og fjölmiðlar eins og Bændablaðið, sem dreifast um allt land, sem lögðu mikla áherslu á að fá meiri styrk til þess að geta sinnt sínu starfi úti á landi betur þannig að þetta togast auðvitað á í þessu. Og eins og fram hefur komið almennt í þessari umræðu þá skiptir þetta máli fyrir alla þessa fjölmiðla, hvort sem það eru litlu fjölmiðlarnir sem fá aðeins meira eða stóru fjölmiðlarnir sem fá aðeins minna. Það er breyting og hún var alveg ágætlega útskýrð í þessu. Af því að það hefur nú komið hér ítrekað fram í umræðunni í dag að tengja þessa breytingu við ummæli einstakra þingmanna þá vildi ég bara taka undir þau orð sem hæstv. ráðherra Logi Einarsson hafði uppi á þeim tíma um það hversu óskammfeilið og hversu vont það væri hvernig talað var gagnvart fjölmiðlum og þingmenn ættu að sjá sóma sinn í því að tala ekki með þeim hætti eins og þá var gert gagnvart þeim. Það er okkur bara ekki sæmandi að gera það. Við eigum ekki með einhverjum hótunum að reyna að hafa áhrif á störf fjölmiðlanna.

En ég vil beina aftur spurningunni til hv. þingmanns varðandi þetta, hvað henni finnst að við eigum að gera núna. Eigum við bara að sleppa þessu, taka þetta upp á næsta ári eða eigum við að klára þetta mál núna?