157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[19:25]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirað áréttaspurninguna af því að ég náði ekki að svara henni hérna áðan, ég fór út um víðan völl. Ég tel að það væri eðlilegast að afgreiða þetta mál með óbreyttu styrkjafyrirkomulagi eins og það hefur verið ef menn ætla á annað borð að afgreiða þetta á þessum tíma. Auðvitað átti ríkisstjórnin, sem er búin að hafa tímann frá því í febrúar, að vera búin að skipuleggja þetta, að koma með þetta mál fullbúið, kannski ekki í september en í október, sem hæstv. ráðherra er búinn að vera að boða. Í raun hefði verið alveg nægur tími til að vinna það. Þannig að ef það er von á einhverri stórkostlegri breytingu í þessum efnum hefði mér þótt óþarfi að koma með þetta mál núna. En úr því að menn ætla ekki að gera það fyrr en eftir áramót þá þarf auðvitað að klára þetta mál, myndi ég telja, í þágu þessa fyrirsjáanleika sem þessi fyrirtæki eru að óska eftir. En þá þarf það að vera þessi fyrirsjáanleiki sem fyrirtækin hafa haft, bæði Morgunblaðið og Sýn, frá því í byrjun þessa árs. Þetta er alveg ótrúleg framkoma, finnst mér, gagnvart þessum tveimur fyrirtækjum og það þýðir ekki fyrir hv. þingmann að koma hingað og segja að hann skuli ekkert dæma um það hvort það sé betra að dreifa þessu á 100 aðra aðila. Það er hans að dæma um það. Hv. þingmaður þarf að hafa á því skoðun hvort það er eðlilegt að dreifa þessum 500 milljónum á 100 aðila eða hvort menn vilji raunverulega standa straum af einhverri alvörufjölmiðlun hérna á Íslandi og mér finnst ekkert verið að gera það í þessu frumvarpi.

Hitt er annað mál að hér er talað um að menn bíði spenntir eftir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið sem ég sé á þingmálaskrá að er boðað hérna í janúar. En það er vísað í — hvaða breyting er það? Það er bara breyting á 7. gr. laga um Ríkisútvarpið. Þetta er auglýsingamarkaðurinn og kostunin. Það er ekki verið að boða neina stefnubreytingu þegar kemur að þátttöku ríkisins og umsvifum á fjölmiðlamarkaði og það er það sem vantar, ekki þetta 500 millj. kr. klinkfrumvarp sem hér er boðað.