157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[19:28]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Hér er frumvarp sem er ætlað að brúa bilið þangað til það kemur nýtt frumvarp. En það er svolítið sérstakt að þessu frumvarpi sé ætlað að brúa bilið og ég verð að fá að nefna það hér eins og hefur verið nefnt hér áður, að í ljósi þess hvernig sérstaklega einn stjórnarþingmaður talaði — en það hefur nú svo sem heyrst úr öðrum ranni — um að það ætti að taka ákveðna fjölmiðla af ríkisstyrknum af því að viðkomandi þingmanni hugnaðist ekki sá fréttaflutningur sem átti sér þar stað, þá er þetta náttúrlega kannski svolítið sérstakt í ljósi þess að nú eru tveir stærstu fjölmiðlarnir sem hafa lent í gagnrýni frá stjórnarþingmönnum, Sýn og Morgunblaðið, þeir fjölmiðlar sem eru að lækka. En eins og hér hefur komið fram þá kom hæstv. ráðherra hér í pontu og fordæmdi slíkt tal, þannig að því sé haldið til haga. Það sýnir samt veikleikana í því að stjórnmálamenn geti haft slíkt vald, hótunarvald, yfir frjálsum fjölmiðlum þessa lands.

Í mínum huga er þetta að mörgu leyti tvö aðskilin mál. Þetta er stuðningur við héraðsfréttamiðla úti á landi, litla staðbundna miðla sem flytja nánari fréttir af sínu nánasta umhverfi, og síðan það umhverfi sem stærri fjölmiðlarnir eru í, Ríkisútvarpið, Sýn og Morgunblaðið. Og hver er nú hlutdeild í heildartekjum á fjölmiðlamarkaði hjá Ríkisútvarpinu? Jú, það er 27% samkvæmt úttekt Viðskiptaráðs í vor, 27%. Er það mikið eða lítið? Á Norðurlöndunum er það 10% að meðaltali. SVT í Svíþjóð er með 6% og NRK í Noregi er með 8%. RÚV er með 27% af heildartekjum á fjölmiðlamarkaði. Og hvernig skyldi standa á því? Jú, það er af því að ríkisfjölmiðlar á Norðurlöndum eru ekki á auglýsingamarkaði. Það er enginn ríkisfjölmiðill á Norðurlöndum á auglýsingamarkaði en hér er RÚV yfir og allt um kring með eilífri blessun sinni. Þetta er í rauninni það sem er stóra málið þegar kemur að fjölmiðlun á Íslandi. Það er þetta ægivald sem RÚV hefur yfir markaðnum og framlög til RÚV eru 12 sinnum hærri en til allra annarra fjölmiðla samanlagt á Íslandi, 12 sinnum hærri. Ég held að það sé ágætt að halda því til haga. Eins og hv. þingmaður kom inn á áðan, Sigríður Á. Andersen, þá er náttúrlega svolítið skrýtið að vera með þetta risavaxna ríkisbatterí í dag þegar við erum búin að vera að leggja af ríkisrekstur síðastliðna áratugi þar sem einkaaðilar hafa bara getað tekið við keflinu, að selja síma eða selja sjónvörp. Einu sinni var ríkið með einkasölu á viðtækjum en það er ekki lengur.

Hver er þá lausnin til framtíðar? Í mínum huga er lausnin til framtíðar einföld þegar kemur að fjölmiðlamarkaði, sérstaklega þegar kemur að fjölmiðlaumhverfi þessara stóru fjölmiðla, sem getur búið til svigrúm fyrir þá til að stækka og jafnvel aðra fjölmiðla að eflast og jafnvel nýja fjölmiðla að verða til: Við eigum að hætta að rukka útvarpsgjaldið, við eigum bara að leggja niður útvarpsgjaldið og spara þannig fjölskyldunum í landinu tugþúsundir á hverju ári. Við eigum að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði og við eigum að skera niður umsvif Ríkisútvarpsins. Við eigum að einbeita okkur að því að hér sé bara Rás 1 sem sinni ákveðnu menningarlegu hlutverki sem við teljum kannski að markaðurinn muni ekki sinna og að RÚV sé með Rás 1. Við eigum líka að setja RÚV á fjárlög, því að ef við setjum RÚV á fjárlög þá þurfum við að velta fyrir okkur hvað við viljum setja mikið í ríkisrekinn fjölmiðil eða hvað við viljum setja í eitthvað annað, malbika meira eða hvað það er sem við viljum gera. Við eigum líka, eins og ég held að hv. þm. Óli Björn Kárason hafi oft nefnt hér þegar hann var þingmaður, samhliða því þegar við skerum niður Ríkisútvarpið að stofna sérstakan sjóð sem dagskrárgerðarfólk, hvort sem það er í útvarpi, kvikmyndagerð, þáttagerð eða hvað sem er, getur sótt í og búið til efni sem er síðan aðgengilegt á streymisveitum, VOD, ruv.is eða hvað sem er, þannig að við höldum áfram að styðja við miklu frekar. Af því að við vitum að einkareknir aðilar sem eru að búa sér til efni fara miklu betur með það fé heldur en að vera með 10 milljarða inn í einhverju ríkisfyrirtæki sem, eins og fram kom áðan, er síðan í samkeppni úti um allan bæ, þetta er ekki bara ríkisfjölmiðill, það er komið í allt saman, komið í hlaðvarp, komið út um allt. Þegar þú ert með hátt í 10 milljarða í tekjur þá held ég að það skapist þessi freistnivandi; þú ert að eyða annarra manna fé og þú ferð í samkeppni við allt og alla. Samkeppnin er ósanngjörn, hún er ójöfn og hún er ósanngjörn og ég held að við þurfum að endurhugsa þetta. Tímarnir hafa breyst mjög mikið. Umhverfi fjölmiðla hefur breyst mjög mikið síðastliðin tíu ár, síðastliðin 15 ár, með öllum streymisveitunum og öllu því efni sem fólk hefur aðgang að og hvernig fólk getur nálgast efni.

Ég held að við verðum líka að hugsa ekki Ríkisútvarpið sem einhvern fasta með 250–300 starfsmenn og 10 milljarða í tekjur og þar af í kringum 6,5 milljarða frá skattgreiðendum þessa lands. Við þurfum að hugsa þetta upp á nýtt og ég held að við getum öll verið sammála um það, ef við hugsum það vel og veltum því fyrir okkur, að svona risavaxinn fjölmiðill sem skapar þetta ójafnvægi á markaðnum, samkeppni ekki bara um auglýsingar — það eru 2–3 milljarðar á ári sem Ríkisútvarpið tekur í auglýsingatekjur, heldur líka samkeppni um kaup á efni og annað við aðra fjölmiðla og er kominn svo í samkeppnisumhverfi í hlaðvörpum og þáttagerð sem einkaaðilar og markaðurinn sinnir nú þegar. Þegar við horfum á ríkisfjölmiðlana á Norðurlöndunum sem hafa miklu minna vægi en ríkisfjölmiðillinn hér á Íslandi þá held ég að við áttum okkur á því og ég held að við getum öll verið sammála um það að risavaxinn, ríkisrekinn fjölmiðill með mörg hundruð starfsmenn í nútímasamfélagi er tímaskekkja og ekkert annað.