fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Ég er á þeirri skoðun að í ljósi þess að þessu frumvarpi er einungis ætlað að brúa bil þá hefðu menn bara haldið sig við fráfarandi úthlutun, þá úthlutun sem var, af því að, eins og kom fram í svari hv. þm. Sigríðar Á. Andersen, þá eru allir búnir að gera ráð fyrir þessu í sínum rekstri og þetta er bara til að brúa bilið. Þá skýtur það svolítið skökku við að það sé lækkað akkúrat á þá tvo fjölmiðla, og sérstaklega annan, sem hafa kannski verið einna gagnrýnastir á störf þessarar ríkisstjórnar. Það bara lítur þannig út. Ég veit alveg að þó að ákveðnir stjórnarþingmenn eða stjórnarþingmaður hafi gengið of langt í orðum sínum þá lítur það samt þannig út sérstaklega af því að þetta er bara til að brúa bilið í nokkra mánuði. Ég lít líka svo á að héraðsfréttamiðlar — þetta er í rauninni tvískipt mál í mínum huga; það eru stóru fjölmiðlarnir og síðan eru það héraðsfréttamiðlarnir og styrkir við þá, hvernig við stöndum vörð um héraðsfréttamiðlana úti á landi. Hv. þingmaður spyr: Af hverju ekki fyrr? Ja, ef ég hefði verið hér á þarsíðasta þingi þá hefði ég talað með sama hætti og ég geri í dag.