fjölmiðlar.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hreinskilið svar við báðum spurningunum. Þetta er áhugavert. Eins og ég sagði áðan og er búinn að segja hér í nokkur skipti í dag þá gefst okkur vonandi tækifæri til að skoða þetta þegar frumvarpið um RÚV kemur samkvæmt þingmálaskránni, sem er þó eins og fram hefur komið fyrst og fremst boðað til að snúast um þátt RÚV á auglýsingamarkaði, sem eru auðvitað þær tekjur sem hinir fjölmiðlarnir eru að ræða um og ræddu um í meðferð nefndarinnar á síðasta þingi að þeir hefðu áhuga á að fá. En á sama tíma höfum við fengið viðvörun frá þeim t.d. fyrirtækjum sem sinna auglýsingamarkaðnum, auglýsingastofunum, um að þeirra mat sé að mjög litlar líkur séu á því að allt það fjármagn sem RÚV fær af seldum auglýsingum muni renna til annarra fjölmiðla á Íslandi heldur muni fyrirtæki á Íslandi í enn meiri mæli færa sig á aðra fjölmiðla sem ekki eru reknir frá Íslandi, bæði samfélagsmiðla og svo bara á streymisveitur og annað slíkt og það sem við getum kannski kallað óhefðbundna fjölmiðla.
Í þessu seinna andsvari langar mig að beina þessari spurningu til hv. þingmanns um einmitt þetta atriði sem snýr að auglýsingamarkaðnum, hver hans sýn er á það og hvaða tilfinningu hann hefur sem er greinilega að velta þessum málum fyrir sér. Hann talar um að fólk hefði getað talað um þetta á þarsíðasta þingi. Telur hann það vera lausnina í öllu þessu, ekki bara að spara skattfé heldur þá að eitthvert meira fé verði eftir fyrir hina fjölmiðlana til að vinna með? Mér sýnist, ef maður skoðar þessi tvö sjónarmið sem hafa birst, annars vegar þeirra sem eru að sækjast eftir styrkveitingum fyrir sína fjölmiðla og hins vegar þeirra sem vinna við að framleiða og selja auglýsingar, að þessi tvö sjónarmið falli ekki alveg saman. Hvaða skoðun hefur þingmaðurinn á þessu?