fjölmiðlar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir seinni spurningu. Ég verð að segja að ég hlakka til umræðunnar um RÚV þegar þar að kemur. Ég vona að þar munum við sjá einhverjar alvörubreytingar á rekstrarumhverfi RÚV hjá hæstv. ríkisstjórn. En við skulum sjá og bíða með það.
Sýn á auglýsingamarkaðinn. Ég er nú bara þannig að ég trúi því að markaðurinn muni finna sér farveg. Ég man líka eftir því þegar verið var að ræða hér um að setja vín í búðir að þá komu einkaaðilar eða fulltrúi einkaaðila, Félag atvinnurekenda, og var kannski ekki alveg á því að gera það af því að ákveðnir aðilar á markaði höfðu fast hillupláss í ríkisbúðunum. En við sjáum það í dag að markaðurinn finnur sér leið í þeim efnum og ég held líka að ef þú ert búinn að taka einhvern ríkisrisa af markaðnum muni það skapa alveg nýtt umhverfi fyrir fjölmiðla á Íslandi. Það þarf að sinna ákveðnum verkefnum og það þarf að fylla í ákveðið gat sem hefur myndast. Ég trúi því að markaðurinn muni gera það og ég trúi því líka að þeir sem eru að auglýsa muni finna því farveg að koma sínum vörum á framfæri hjá þeim einkareknu fjölmiðlum sem eru á Íslandi í dag. En auðvitað er það alþjóðlegt og það er ekkert bara hér á Íslandi, það er á Norðurlöndunum líka og það er úti um allt þar sem er talað um auglýsingar hjá þessum risastóru samfélagsmiðlum eins og Meta og fleirum sem eru alltaf að taka hærra og hærra hlutfall á auglýsingamarkaði. Það er ekkert séríslenskt en við þurfum náttúrlega að vera vakandi yfir því. En ég trúi því að við séum að skapa meira svigrúm fyrir einkarekna fjölmiðla og að þeir muni grípa boltann, hvort sem það er út af auglýsingum eða þáttagerðarefni og upplýsingamiðlun, ef við búum þetta svigrúm til.