skipulagslög.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka framsögumanni þessa máls, Hildi Sverrisdóttur, fyrir hennar framsögu hér fyrr í dag. Við Sjálfstæðismenn stöndum allir að því frumvarpi sem að hv. þingmaður flutti hér áðan, frumvarp sem hefur að markmiði að bæta svæðisskipulag sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, styrkja lýðræðið og tryggja skipulagið sé sveigjanlegt og í takt við örar breytingar samfélagsins. Breytingar samfélagsins hafa orðið líklegast töluvert hraðari heldur en menn bjuggust við, alls konar breytingar sem tengjast mannfjölda, tækni og öðru slíku sem kannski voru ekki endilega fyrirséðar.
Í dag kveða lög á um að öll sveitarfélög á svæðinu verði að vera sammála um breytingar á svæðisskipulagi. Það þýðir að ef eitt af sveitarfélögunum er ekki sammála þá hefur það ákveðið neitunarvald yfir hinum sex. Hér hefur verið umræða um það að fimm sveitarfélög geti kúgað tvö en eins og staðan er í dag þá getur eitt sveitarfélag kúgað sex. Eitt sveitarfélag sem er í andstöðu við hin sex, þó að það sé ríkur meiri hluti í þeim öllum, getur hamlað breytingum og þróun sem hin sveitarfélögin vilja. Auðvitað er það ekki algengt að þetta komi upp, að það sé einhver hörð afstaða eins sveitarfélags eða tveggja gegn hinum og að það ætti ekki að vera á svæðinu sem stórhöfuðborgarsvæðið er. En þessi staða eins og hún er í dag, að eitt sveitarfélag hafi neitunarvald, er sérstök og því er þetta frumvarp að mínu mati gott.
Svæðisskipulag gildir í áratugi og byggir á forsendum sem geta breyst, eins og ég nefndi áðan; tækni, fólksfjölgun, ný sýn, nýjar samgönguþarfir eða nýjar samgöngur, sem við kannski höfum ekki séð fyrir að geti leitt til einhvers betra. Þá skiptir máli að aukinn meiri hluti geti breytt ákvörðunum. Við leggjum til að aukinn meiri hluti, þ.e. að a.m.k. fimm af sjö sveitarfélögum, geti samþykkt breytingar. Þessi breyting er í raun réttlátari leið og betri farvegur fyrir lýðræðið og tryggir að vilji meiri hlutans fái meira vægi en minni hlutinn haldi engu að síður sínum áhrifum.
Aukinn meiri hluti kallar á meira samtal. Þá er það ekki bara þannig að menn geti bara sagt nei og þagað, heldur er það líklegra þegar við erum komin með aukinn meiri hluta, fimm af sjö, að það krefjist þess að menn fari meira í lýðræðisbúninginn og fari í málamiðlanir og sýni vonandi meiri ábyrgð í málflutningi þrátt fyrir að það hafi ekkert endilega verið mikið um eitthvert ábyrgðarleysi. Það er þekkt, sem er kannski ekki nákvæmlega sama dæmið, í minnihlutastjórnum á Norðurlöndunum að menn þurfi svona samtal og ég held að það sé alltaf gott til að komast að niðurstöðu, menn geta ekki bara verið fúlir á móti og þagað. Það er alla vega þannig að þegar þú ert kominn með fimm á móti tveimur þá er það jafnara samtal heldur en ekki.
Breytingar á svæðisskipulagi geta tafist um mörg ár vegna þess að eitt sveitarfélag getur af einhverjum ástæðum, hvort sem það eru pólitískar, málefnalegar eða ómálefnalegar, haldið hinum sex í gíslingu og þetta getur alveg haft alvarlegar birtingarmyndir varðandi uppbyggingu nýrra íbúðahverfa, samgönguæða eða eitthvað slíkt. Það getur skapast einhver pólitískur vilji. Ég er ekki að segja að það geti ekki skapast með auknum meiri hluta en það eru kannski minni líkur á því þegar við erum með þennan aukna meiri hluta í stað þess að eitt sveitarfélag geti komið í veg fyrir breytingarnar. Eitt sveitarfélag, hvort sem það er stórt eða lítið, getur þá stöðvað breytingar sem annað sveitarfélag vill. Ef það eru málefnaleg rök fyrir breytingunum þá eru stjórnmálamenn í þessum sveitarfélögum vonandi tilbúnir til að samþykkja þau hvar í flokki sem þeir eru. Þá er hægt að afla aukins meiri hluta við ákvarðanir sem fimm sveitarfélög, og það er þá stór meiri hluti, telja að séu til bóta fyrir heildarhagsmuni þessa svæðis. Þetta er ekkert fullkomið frekar en það sem er í gangi í dag en ég held að það sé ljóst að það sé réttlátara og sanngjarnara, svo ég noti nú uppáhaldsorð stjórnarliða.
Sumir óttast að það sé dregið úr sjálfstæði sveitarfélaga með þessu en ég tel það ekki vera raunina. Sveitarfélög hafa áfram ríkan rétt til umsagna og áhrifa. Og svo er þessi aukni meiri hluti, þú þarft hann til breytinga; ekki bara meiri hluti, ekki bara 51%, heldur þessi aukni meiri hluti. Ef við erum með sveitarstjórnir í þessum sjö sveitarfélögum og fimm þeirra sammælast um breytingar til hins betra, það er ekki fullkomið lýðræði en það ætti að skila betri niðurstöðu heldur en kerfið eins og það er í dag. Þetta tryggir bæði samráð og framfarir. Auðvitað getur hitt kerfið tryggt samráð og framfarir en ég tel að þetta geri það betur.
Lýðræðið, að einn geti stoppað sex, getur vissulega stundum átt rétt á sér. Sex eiga ekkert að kúga einhvern einn til einhvers sem er hræðilegt, en ég held að þau tilfelli eigi ekki við í samráði sveitarfélaga hér á höfuðborgarsvæðinu. Með því að vera með þennan aukna meiri hluta þá er hægt að bregðast hraðar við. Það er vonandi hægt að keyra einhver þjóðþrifamál hraðar áfram ef forsendur breytast. Sameiginlega stórar ákvarðanir um framkvæmdir verða ekki háðar því að það þurfi að sannfæra ystu sjónarmið í umræðunni til að fá 100% samþykki. Það er best ef það er þannig, menn mega ekki láta af þeim kröfum að reyna það og taka eins mikið tillit og hægt er. En rétt hinna, sem eru ekki tilbúnir að ganga með þessum fimm eða sex, má heldur ekki trompa.
Meirihlutavilji getur hraðað uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Varðandi húsnæðismálin þá er nauðsynlegt að við ávörpum aðeins þann vanda sem blasir við sökum fólksfjölgunar að sjálfsögðu og líka þess að við höfum ekki byggt nógu hratt hér í sveitarfélögunum. Þá skiptir máli að sveitarfélögin geti hreyft sig hratt og byggt mikið til að koma til móts við þann vanda sem blasir við, sem er skortur á húsnæði á þessi svæði sem þetta svæðisskipulag tekur tillit til. Húsnæðisverð hefur hækkað sem hefur bein áhrif á neysluvísitöluna sem er þá mælikvarði á verðbólgu og 1% verðbólga eru tugir milljarða álögur á samfélagið. Þetta er svona partur af stærri mynd.
Það væri hægt að spyrja: Er ekki þá hætta á einhverju ofríki stærri sveitarfélaga? Nei, það er kannski hætta á því þegar það er einfaldur meiri hluti. Auðvitað er einhver hætta með auknum meiri hluta, það er alltaf einhver hætta í þessu en við getum ekki verið með fullkomið lýðræði eins og maður myndi vilja. Það er óraunhæft en það þarf breiða samstöðu, breiða samstöðu a.m.k. fimm sveitarfélaga og vonandi er dómgreind þeirra fimm sveitarfélaga og þeirra kjörnu fulltrúa í þeim þess eðlis að heildarhagsmunirnir séu hafðir í forgrunni.
Sveitarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins er ekki skylt að gera sameiginlegt svæðisskipulag en við heyrðum hér í ræðum fyrr í dag hjá hv. þingmönnum að þrátt fyrir það hafa sveitarfélög tekið sig saman og ákveðið skipulag í kringum sveitarfélög sín sem er ekkert óvitlaust. Í sveitarfélögum sem liggja hvert að öðru, eins og er hér á höfuðborgarsvæðinu, er gáfulegt að menn taki sameiginlegar ákvarðanir, að það sé ekki einn að byggja í austur og hinn í vestur, að götur og samgönguæðar mætist og þetta sé vel gert, enda er það hagur allra. Samlegðin skiptir máli.
Virðulegur forseti. Þetta frumvarp er hófstillt, skynsamlegt og fer ákveðið bil beggja. Það styrkir lýðræðið, eykur sveigjanleika og færir skipulag okkar nær því sem er í gangi í samfélaginu í dag. Vissulega er það mögulega hægt með núverandi svæðisskipulagi en það er auðveldara að spyrna við fótum og hindra framgang ef þetta frumvarp nær ekki í gegn. Ég hvet bara þingheim til að sameinast um þetta mál og styðja frumvarpið ég vonast til að það verði umræða um þetta í kjölfarið.