skipulagslög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen kærlega fyrir hans ræðu. Mig langar að velta upp einni, tveimur spurningum og líka taka fram að ég hef þær áhyggjur að þetta frumvarp standist ekki stjórnarskrá, alla vega ekki hvað varðar sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga. Ég ætla að útskýra af hverju. Það er ekkert launungarmál að þetta er mjög pólitískt mótíverað, það er ákveðin saga hérna á bak við. En niðurstaðan, ef þetta væri samþykkt, væri sú að það væri möguleiki á því að sveitarfélag væri bundið af einhverri ákvörðun sem önnur sveitarfélög myndu taka en það sjálft væri á móti. Hér taka menn bara dæmi um það: Hvað ef ég vil stækka hjá mér og einhverjir aðrir eru á móti? Er það ekki hræðilegt? En hitt er líka til í dæminu, að það getur verið að það sé beinlínis í svæðisskipulaginu lögð til einhver þvingun, t.d. að leggja einhverja stofnbraut eða að vaxtarmörk séu minnkuð hjá einu sveitarfélagi til að koma í veg fyrir að það sé byggt. Það eru engar hömlur á það í þessu frumvarpi. Þá getur einhver spurt: Er það ekki nú þegar svolítið þannig þegar með svæðisskipulagi er jú verið að leyfa einhverjum að banna eitthvað? En munurinn er samt sá að öll þessi sveitarfélög hafa á einhverjum tímapunkti samþykkt þetta svæðisskipulag. Það svæðisskipulag sem er í gildi var samþykkt af öllum sveitarfélögum með nokkuð breiðri sátt og það gildir til einhverra ára þannig að sveitarfélög hafa komið að því og átt einhverja aðkomu að því að samþykkja viðkomandi kerfi. Með þessu fyrirkomulagi er hætta á því að það sé tekin bindandi ákvörðun fyrir sveitarfélag, ekki af ríkisvaldinu heldur af öðrum sveitarfélögum í nágrenninu, sem það sveitarfélag hefur á engum tíma samþykkt, ekki fyrir tíu árum, ekki fyrir 15 árum.
Þetta er það sem ég hef áhyggjur af við þetta frumvarp og mér finnst höggvið svolítið nærri sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga. Ég spyr á sama hátt, ef við förum á hið pólitíska svið: Ef það væri þannig að það væri í Reykjavík stjórn sem væri kannski mjög nálægt hv. þingmanni en í kringum væru sveitarfélög sem væru algerlega á öndverðum meiði, (Forseti hringir.) myndi hv. þingmaður telja að þetta fyrirkomulag sem hann leggur til væri betra og myndi hann sofa rólega á nóttunni ef það væri við lýði?