skipulagslög.
Frú forseti. Hér er um að ræða ágætisfrumvarp og þarft, þótt það feli í sér að mínu mati heldur mikla hlédrægni, gangi heldur skammt miðað við það sem tilefni er til. En það er líklega rétt að byrja á forsögu málsins. Ég er mjög minnugur þess þegar að árið 1998 var farið að vinna að sameiginlegu skipulagi höfuðborgarsvæðisins og það kynnt á þeim forsendum að það væri mikilvægt fyrir þessa byggð, sem þá þegar hafði í raun runnið saman, að menn litu til heildarmyndarinnar í skipulagi, ef ég man rétt, og tók þetta gildi 2001.
Ég fylgdist náið með þessari þróun og taldi þetta vera akkúrat það sem þyrfti og til mikillar fyrirmyndar að menn skyldu núna í auknu mæli, miðað við það sem áður hafði verið, ætla að huga að höfuðborgarsvæðinu sem einni heild og skipuleggja í samræmi við það að allar þessar byggðir, öll þessi sveitarfélög, spiluðu saman að því að ná hámarksárangri. Skipuleggja í raun höfuðborgarsvæðið allt, eins og stundum er talað um borgir, sem einn líkama þar sem hvert svæði hefur sínu hlutverki að gegna og á að gegna því sem best. En hugsanlega var þetta, og ýmislegt sem bendir til þess, að mörgu leyti eins og rammaáætlun í virkjunarmálum; góð hugmynd þegar lagt var upp með þá nálgun.
Svo kom raunveruleikinn inn í dæmið og í báðum tilvikum varð þessi hugsun, þessi heildarhugsun, öfgunum að bráð. Öfgarnar, hvort sem var í skipulagsmálum eða í orku- og umhverfismálum, sem eru í raun skipulagsmál líka, nýttu þessi verkfæri til þess að koma í veg fyrir framfarir og framkvæmdir. Það varð að meginhlutverki þessa í hugum þess fólks að það væri hægt að nýta til að koma í veg fyrir árangur og framkvæmdir. Við skulum ekki fara í neinar grafgötur með það að þetta er til komið af illri nauðsyn vegna framgöngu Reykjavíkur í skipulagsmálum sem hefur verið hrikaleg — hrikaleg — núna um alllangt skeið.
Ég veit að nágrannasveitarfélögin hafa mörg hver, jafnvel flest eða öll, oft á tíðum dregist með Reykjavík í þeirri — hv. þm. Pawel Bartoszek gerði athugasemd við það hérna áðan að einhver hefði talað um sértrúarsöfnuð, ég skal forðast það orðalag en segja í staðinn: dregist með í þeim kreddum sem Reykjavíkurborg eða stjórnvöld þar, ráðandi meiri hluti, hefur lagt upp með núna um allt of langt skeið. Það er sorgarsaga, sem ég ætla ekki að rekja hér nákvæmlega, hvernig nágrannasveitarfélögin drógust með í þetta. En með samþykkt þessa frumvarps — og eins og ég segi, helst þyrfti aukið frelsi — þá vonandi myndu þessi nágrannasveitarfélög Reykjavíkur öðlast aukinn kjark til þess að taka ákvarðanir út frá skynsemi í skipulagsmálum. Þegar ég tala um skynsemi þá á ég m.a. við að menn bregðist við í samræmi við þörfina í húsnæðismálum, í stað þess að gera eins og Reykjavíkurborg; að auka á vandann með ákvörðunum og mjög óæskilegum og skaðlegum hvötum oft á tíðum.
Þéttingarstefnan, eins og Reykjavíkurborg hefur framkvæmt hana, er náttúrlega ekkert annað en öfgastefna. Þess vegna er ég ekkert hissa á að einhver hafi misst hér út úr sér orðið „sértrúarsöfnuður“. Þegar maður fylgist með framkvæmdinni, og raunar líka réttlætingunni og hvernig um þetta allt er talað, þá er þetta ekki til komið með hliðsjón af einhverri heilbrigðri og almennri skynsemi. Þetta eru nánast trúarbrögð. Afleiðingarnar blasa við þeim sem fara um götur Reykjavíkurborgar þessi misserin. Það þarf ekki að fara langt til að sjá þetta, þetta er hér í miðbænum víða og við Hringbrautina þar sem verið er að reisa gríðarlega stóra kassa alveg við umferðaræðar borgarinnar. Algerlega án tillits til umhverfisins eða raunveruleikans þá er verið að byggja íbúðir alveg upp að umferðaræðunum.
Ég sá annað dæmi við, hvort það var ekki Háaleitisbraut, þar sem verið er að byggja núna húsnæði á þeim stað sem áður var skilgreint sem grænt svæði. Búið að byggja auðvitað, eins og svo víða, fyrir glugga fjölda fólks og algjörlega upp að strætóskýlinu sem stendur þar við götuna, eins langt og hægt er að komast án þess að þurfa að rífa strætóskýlið við umferðaræð. Það sjá það allir að þetta er auðvitað fráleitt skipulag og svo þegar það bætist nú við að jafnvel er gerð krafa um að það megi ekki vera nógu mörg bílastæði fyrir íbúa hinna nýju húsa þá sjá menn að það er eitthvað bogið við þetta, það er eitthvað annað heldur en heilbrigð skynsemi sem ræður þarna för. Það er eitthvað annað en markmiðið um að búa til sem flestar íbúðir á hagkvæmu verði, búa til þær íbúðir sem fólk kallar eftir. Það er eitthvað annað sem ræður för.
Það er kreddan sem er orðin allsráðandi í Reykjavík með áformin um þéttingu byggðar hvað sem það kostar. Þannig er byggt fyrir útsýni fólks um allt, hvort sem það eru ný fjölbýlishús eða risastórar skemmur eða spítali á óheppilegasta stað á umferðareyju við Hringbraut, af því að það verður alltaf falla að kreddunni um þéttingu byggðar. Kostnaðurinn við þetta fyrir samfélagið er auðvitað alveg gífurlegur svo ekki sé minnst á þau skaðlegu áhrif sem þetta hefur á þróun höfuðborgarinnar; þegar að menn leyfa kreddum að ráða frekar en að huga að framkvæmdum út frá heilbrigðri skynsemi.
Þannig sjáum við það gerast nú um alla borg að verið er að byggja við umferðaræðar og við samgöngumannvirki sem voru ekki hönnuð fyrir þessa miklu nýju byggð. Þau voru hönnuð fyrir ákveðinn fjölda íbúa og bílastæði þar á meðal, en nú á bara að líta fram hjá því. Það að líta fram hjá útreikningum um umferðarþunga, það á líta fram hjá útreikningum um bílastæðaþörf. Af hverju? Út af kreddunni. Þá leyfa menn sér að líta fram hjá vísindunum, mætti jafnvel segja, líta fram hjá tölfræðilegum staðreyndum. Stinga höfðinu í sandinn og halda áfram án þess að svo mikið sem taka tillit til þess þegar reynslan sýnir hversu skaðlegt þetta allt saman er og birtist m.a. í því að það er mjög takmörkuð eftirspurn eftir þessum dýru íbúðum sem eru bílastæðalausar einhvers staðar við umferðaræðar.
Samt er bara haldið áfram. Krakkarnir eru búnir að benda á að keisarinn sé nakinn en hann strunsar bara áfram með hirðinni af því að hann getur ekki viðurkennt að stefnan hafi verið röng. Eins og ég gat aðeins um hérna í upphafi þá er mjög dapurlegt, finnst mér, að sjá að hversu miklu leyti nágrannasveitarfélögin hafa dregist með í þessa vitleysu í stað þess að veita viðspyrnu. Vonandi má þetta mál verða til þess að þau öðlist aukinn kjark. En það hefur ekki verið ánægjulegt eða hughreystandi að fylgjast með því t.d. hvernig þessi sveitarfélög létu plata sig í það að fara inn í borgarlínuvitleysuna.
Það er náttúrlega nátengt þessari þéttingarstefnu sem ég nefndi hérna áðan. Það eru lagt aukaálag á íbúðir sem eru á slæmum stað af því að þær eiga að vera nálægt stoppistöðvum borgarlínunnar. En allt ber þetta að sama brunni, varðandi bílastæðin, varðandi umferðaræðarnar, tengingarnar eða þessar nýju íbúðir; allt á þetta miða að því að þrengja að bifreiðum, af því að það er náttúrlega stór hluti af kreddunum sem nágrannasveitarfélögin, illu heilli, létu plata sig út í. Stór hluti af kreddunum er einfaldlega hatrið á fjölskyldubílnum. Að það skuli, eins og í Austur-Þýskalandi í gamla daga, beina fólki í almenningssamgöngur. Þar þurftu menn reyndar að bíða eftir því að fá hugsanlega að kaupa sér Trabant í 7–12 ár, en hér á að nota þá aðferð að gera fólki nánast ókleift að ferðast um götur borgarinnar á eigin vegum, neyða sem flesta upp í þessa borgarlínu.
Þeir sem að henni standa viðurkenna þó sjálfir að það muni ekki, þrátt fyrir að árangur náist, meiri árangur en hefur náðst við aðrar tilraunir til að bæta úr almenningssamgöngum — þrátt fyrir að það takist núna loksins að auka notkun almenningssamgangna þá muni það ekki draga úr bifreiðaumferð á götum borgarinnar. Með öðrum orðum er viðurkennt að umferðin muni engu að síður vera töluvert mikil og meiri en nú er, en hún fái bara minna pláss þannig að menn þurfa að bíða enn þá lengur eftir að komast á milli staða og væntanlega menga þeim mun meira sem þeir sitja lengur fastir í umferðinni.
En aftur, af því að þetta eru bara kreddur, þetta er hugmyndafræði án tengsla við raunveruleikann, þá hafa menn ekki viljað endurskoða þetta. Vonandi gefst nú nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur í auknum mæli tækifæri til þess að breyta, taka þátt í því sem þarf, byggja það húsnæði sem fólk þarf á að halda og kallar eftir og vonandi setur það þá þrýsting á Reykjavík því að á meðan keisarinn þrammar áfram nakinn og öll hirðin á eftir þá mun hann bara halda áfram út í buskann. En vonandi munu einhverjir úr hirðinni, og þá á ég við nágrannasveitarfélög Reykjavíkur, núna fá kjark og möguleika á að fara aðra leið. Klæða sig í, gyrða upp um sig og sýna Reykjavíkurborg að það séu til aðrar og betri leiðir. Þetta mál gæti orðið dálítið innlegg í það, myndað jákvæða hvata, það gengur ekki nógu langt, eins og ég nefndi hérna áðan, en það getur orðið mjög æskilegur hvati í þessa veru.
Að lokum skal þó sagt sem ég vék að í upphafi: Hugmyndin um sameiginlegt heildarskipulag var góð en hún varð að fórnarlambi kreddustjórnmálanna. Komist menn einhvern tímann út úr þeim þá held ég að það væri æskilegt að samstarf sveitarfélaga væri sem mest og þau nýttu styrkleika sína saman til þess að ná sem mestum árangri fyrir heildina. En eins og sakir standa þá er ekki um annað að ræða að mínu mati en að veita aukið frelsi svoleiðis að fólk hafi a.m.k. einhvern valkost um sveitarfélag sem tekur ákvarðanir í skipulagsmálum út frá þörfum og út frá heilbrigðri skynsemi.