157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

leit að olíu og gasi.

63. mál
[21:21]
Horfa

Flm. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M):

Frú forseti. Þessi tillaga gengur út á að Íslendingar leitist við að nýta eina af sínum mestu auðlindum. Við eigum miklar auðlindir en sú sem hér er undir kynni að vera ein sú verðmætasta og myndi strax, ef ráðist yrði í fyrir alvöru að skoða nýtinguna, hefja rannsóknir, hafa mjög umtalsverð áhrif fyrir samfélagið, ekki hvað síst byggðir á Norður- og Austurlandi og ef árangur næðist myndi gjörbylta efnahagsstöðu Íslands til hins betra. Ísland stendur á heildina litið vel efnahagslega í samanburði við önnur lönd en ef sá árangur næðist, sem sumir telja að geti náðst í nýtingu olíu og gass í íslenskri lögsögu, þá yrði Ísland líklega ríkasta land í heimi og þyrfti að velta fyrir sér hvernig best væri farið með það fjármagn. En áður en við höldum áfram þeim vangaveltum skulum við rifja upp forsögu málsins.

Í tíð Össurar Skarphéðinssonar sem iðnaðarráðherra, meira að segja í tíð vinstri stjórnarinnar hinnar fyrstu áður en hinar fylgdu á eftir, hófst olíu- og gasleit við Ísland. Þetta kom til ekki hvað síst fyrir tilstuðlan stjórnvalda sem hvöttu til leitar og buðu út slík leyfi. Þetta var gert í samráði við norsk stjórnvöld og norska ríkisolíufélagið Petoro. Hingað kom norskur ráðherra og undirritaði samkomulag við íslensk stjórnvöld og allt fór af stað. Árangurinn af þessum rannsóknum reyndist vonum framar, held ég að mér sé óhætt að segja, en svo urðu atburðir eins og stundum gerist í pólitíkinni. Það kom til deilna milli Kínverja og Norðmanna, illdeilna held ég að mér sé óhætt að segja, þar sem viðskiptabanni, samskiptabanni var hótað á víxl vegna veitingar friðarverðlauna Nóbels. Það sem verra var þó var að norska ríkisstjórnin lenti í vandræðum, hún hafði ekki meirihlutastuðning í þinginu og varð að semja við smáflokkinn Venstre, sem er einhvers konar Viðreisn Norðmanna. Sá flokkur gerði það að skilyrði fyrir stuðningi við ríkisstjórnina að ekki yrði ráðist í nýja olíuvinnslu eða -leit og sérstaklega var lögð áhersla á að það yrði ekki gert á norðurslóðum. Norðmenn drógu sig fyrir vikið út úr verkefninu og Kínverjar einnig og þá var þessu sjálfhætt um sinn. En þær rannsóknir sem fram höfðu farið bentu til þess að þarna væri um gríðarlegar auðlindir að ræða. Helsti sérfræðingur Norðmanna á Jan Mayen-svæðinu taldi að olíulindir þarna gætu verið á við olíulindir Norðmanna. Eftir það tók við tímabil þar sem ýmsir töldu einfaldlega rangt að nýta þessa auðlind og þannig gerðist það í tíð síðustu ríkisstjórnar að ítrekað var lögð fram tillaga um það að það yrði lagt bann við, ekki bara vinnslu á olíu og gasi heldur rannsóknum. Það mun, eftir því sem ég kemst næst, hafa verið í fyrsta skipti í Íslandssögunni þar sem lagt er til bann við rannsóknum. Þingflokkur Miðflokksins beitti sér gegn þessu máli og sem betur fer náði það ekki í gegn.

Nú er tekin við ný ríkisstjórn sem sýnir þessu tækifæri vægast sagt takmarkaðan áhuga og svarar því helst til að það sé ekki búið að banna þetta, menn geti einfaldlega ef þeir vilja farið að bora þarna. Dettur einhverjum í hug að olíufélög myndu, í trássi við vilja ríkisstjórnarinnar, taka upp á því að sækja um leyfi fyrir gríðarlega dýrum rannsóknum upp á von og óvon? Að sjálfsögðu ekki, það dytti engum það í hug. Þegar stjórnvöld leggjast gegn framkvæmdinni þá leita menn einfaldlega annað. Þess vegna teljum við mikilvægt, og það er tilgangur þessarar þingsályktunartillögu, að íslensk stjórnvöld sýni í verki að þau séu aftur reiðubúin til að ráðast í nýtingu þessara hugsanlegu og líklegu auðlinda í samstarfi við þá sem vilja ráðast í leit og vinnslu og að það skuli gert nokkurn veginn eftir norsku leiðinni með ríkisolíufélagi sem vel að merkja hefði fyrst og fremst það hlutverk að halda utan um málið. Við erum ekki að leggja til að stofnað verði fyrirtæki sem leigi borunarskip og sigli af stað á Drekasvæðið. Það eru fyrirtæki sem eru betur til þess fallin og sérhæfa sig í því. En það er mikilvægt fyrir slík fyrirtæki að hafa traustan samstarfsaðila á Íslandi sem heyrir undir íslensk stjórnvöld. Það dytti engu olíuleitar- eða olíuvinnslufyrirtæki í hug að senda erindi á umhverfisráðuneytið, frú forseti, til að spyrja hvort menn væru nokkuð búnir að skipta um skoðun og hvort þau mættu fara að bora. Nei, menn ráðast ekki í slíkt nema þeir viti að þeir njóti stuðnings stjórnvalda. Þetta væri leið til þess að íslenska ríkisstjórnin gæti sýnt með afgerandi hætti að nú sé til staðar vilji til að ráðast í þessar rannsóknir og vinnslu í framhaldinu.

Hversu mikil verðmæti eru þarna undir? Ja, Viðskiptablaðið fjallaði um þetta ekki alls fyrir löngu og færði rök fyrir því út frá þeim rannsóknum sem hafa átt sér stað að verðmætin gætu numið um 66.000 milljörðum kr. Ég ætla að endurtaka þessa tölu, frú forseti, 66.000 milljörðum kr. Helmingurinn af því færi beint til ríkisins fyrir utan öll hin afleiddu áhrifin, helmingurinn beint í tekjur, 33.000 milljarðar kr. Við getum rétt ímyndað okkur hvað væri hægt að gera fyrir slíka peninga. Þá væri náttúrlega áhyggjuefni okkar fyrst og fremst að þeir yrðu nýttir vel en við verðum að vona að við gætum gert það á svipaðan hátt og Norðmenn, að þessu verði ekki öllu eytt í borgarlínu og eitthvað rugl. En þessi verðmæti gætu tryggt velferð allra Íslendinga til langrar framtíðar. Því skyldu menn þá ekki láta á þetta reyna?

Þá segja sumir að það sé á einhvern hátt ósiðlegt að nýta þessa auðlind, vísa í loftslagsmál og eitthvað slíkt. Þó liggur fyrir að orkuþörf heimsins muni aukast um u.þ.b. 2% á ári til framtíðar, rétt eins og hún hefur gert undanfarna áratugi, og að þeirri auknu orkuþörf verði ekki mætt eingöngu með vindmyllum til að mynda. Ef það ætti að mæta viðbótarorkuþörf eins árs, bara það sem bætist við á einu ári, með vindmyllum þá þyrfti að þekja svæði á stærð við sjöfalt flatarmál Íslands, reyndar meira af því að menn geta ekki sett vindmyllur á jökla og fjallstinda og þar fram eftir götunum. Það er ekki raunhæft. Ég tel að allir meira og minna geri sér grein fyrir því að eftirspurn eftir olíu og gasi muni óhjákvæmilega aukast um fyrirsjáanlega framtíð hvað sem líður tilraunum sem vonandi reynast farsælar til að auka á notkun endurnýjanlegra orkugjafa. Aðalatriðið er að það takist að draga úr kolanotkun. Kolabrennsla mengar margfalt, margfalt á við olíu, sérstaklega á við náttúrugas, og gróðurhúsalofttegundalosunin er auk þess miklu meiri.

Bandaríkin hafa náð talsverðum árangri í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Hvernig? Fyrst og fremst með því að skipta kolum út fyrir náttúrugas. Það er því skylda okkar að leggja okkar af mörkum til að mæta orkuþörf heimsins. Þetta er ekki bara spurning um fjárhagslegan ávinning fyrir íslenskan almenning og fyrir byggðirnar í landinu, þetta er líka spurning um öryggismál sem eru nú ofarlega á baugi þessa dagana. Það er skylda okkar gagnvart okkur sjálfum og gagnvart samstarfslöndum okkar á Vesturlöndum að nýta þær auðlindir sem eru undir yfirráðum okkar til að styrkja öryggi þessara landa. Eða viljum við að þessari óhjákvæmilegu auknu orkuþörf ár eftir ár verði fyrst og fremst mætt af einræðisríkjum sem fyrir vikið munu hafa sífellt sterkari tök á lýðræðisríkjunum? Er það æskilegt að mati einhvers? Við höfum þegar séð hversu mikil áhrif orkutak Rússlands á Evrópu, ekki síst Þýskalandi, hefur haft. Viljum við ekki leggja okkar af mörkum til öryggismála til þess að framleiða umhverfisvænni orku en ella væri notuð til að framleiða þá orku, olíuna og gasið, á umhverfisvænni hátt en annars staðar er gert? Til að framleiða nær mörkuðum? Til að, um leið, skapa, vonandi, gríðarlegar tekjur fyrir íslenskt samfélag, styrkja öryggi þess, auka velferð í landinu og efla til gríðarlegra muna byggðirnar á landsbyggðinni, ekki hvað síst á austan- og norðanverðu landinu. Því skyldum við ekki ráðast í slíkt? En það sem vantar eru skýr skilaboð frá íslenskum stjórnvöldum. Það eina sem frá þeim hefur heyrst undanfarin ár eru tillögur um að banna rannsóknir á þessum auðlindum. Banna rannsóknir, hugsaðu þér, frú forseti, í hvert skipti sem ég segi þetta verð ég hissa, en þetta var raunverulega lagt til ítrekað. Ellegar þá eins og í tíð núverandi ríkisstjórnar að þetta sé á einhvern hátt ósiðlegt og njóti ekki stuðnings stjórnvalda. Það mun enginn ráðast í að nýta þetta tækifæri nema með velvild stjórnvalda. Það vissi þáverandi ráðherra, Össur Skarphéðinsson, á sínum tíma. Ég skal bara hrósa honum fyrir það þó að ég hafi oft gagnrýnt hann í gegnum tíðina. Þetta vissi hann á sínum tíma og má bæta því við að meira að segja Vinstri hreyfingin – grænt framboð vissi þetta, frú forseti. Man hæstv. forseti eftir því skömmu fyrir kosningar 2009 þegar þáverandi umhverfisráðherra, Kolbrún Halldórsdóttir, umhverfisráðherra Vinstri grænna, lét þau orð falla að ef það væru olíu- og gasauðlindir í íslenskri lögsögu þá ættum við hugsanlega ekki að nýta þær? Man hæstv. forseti eftir viðbrögðum, ekki bara fjölmiðlanna, ekki bara almennings, ekki bara hinna flokkanna, heldur viðbrögðum þingflokks Vinstri grænna sem kallaði saman neyðarfund og sendi frá sér tilkynningu fyrir kvöldfréttir um að það væri ekki stefna Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs að leggjast gegn leit og hugsanlegri vinnslu á olíu og gasi við Íslandsstrendur? Hversu langt höfum við færst í öfuga átt þegar fáeinum árum seinna var hér ríkisstjórn þessara sömu Vinstri grænu, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sem lagði til bann við rannsóknum.

Nú sitjum við uppi með þessa furðustjórn sem nýlega er tekin við en tilgangurinn með þessari tillögu er að hjálpa þeirri stjórn. Við erum ekki að leggja til lagafrumvarp um hvernig þetta eigi að vera, heldur hvatningu til þessarar ríkisstjórnar sem má eiga allan þann heiður sem henni kynni að hlotnast af því að sýna þá drift sem Össur Skarphéðinsson sýndi á sínum tíma, ráðherra Samfylkingarinnar, með því að taka þessi mál föstum tökum. Við erum í raun að reyna að hjálpa þessari ríkisstjórn að ná sínum markmiðum um að efla Ísland á sviði öryggismála, á sviði efnahagslífsins og velferðar á öllum sviðum. Hér gefst nýrri ríkisstjórn kærkomið tækifæri til að sýna að hún sé öðruvísi en hinar fyrri, hún hafi náð áttum, hún skilji raunveruleikann og sé tilbúin að gera það sem að mínu mati og okkar í Miðflokknum blasir við, nota tækifæri Íslands og auðlindir og gera það í þágu þjóðarinnar allrar.