leit að olíu og gasi.
Frú forseti. Ég þakka stuðninginn. Hv. þingmaður dró aðeins í land með áhyggjur sínar af ríkisolíufélaginu undir lokin eftir að ég var búinn að biðja um andsvar. Þess vegna ætla ég að vera mildur við hv. þingmann sem sýndi hér í orði a.m.k. stuðning við þessa tillögu, en það er einmitt eins og hv. þingmaður sagði undir lokin, útfærsluatriði. Hins vegar held ég að það sé mjög mikilvægt að íslensk stjórnvöld finni leið og þetta er sannarlega sterk leið til þess að sýna að þeim sé alvara með að þau vilji starfa með þeim sem gætu hugsað sér að vinna olíu og gas, og auðvitað byrja á því að leita að því, í íslenskri lögsögu. Það hefur verið bent á það, eftir að þessi tillaga kom fram og einhverjir sáu ástæðu til að gagnrýna hugmyndina um ríkisolíufélag þótt það sé nú fyrirkomulagið í Noregi, að menn geti bara sótt um til umhverfisráðuneytisins. Spurning mín til hv. þingmanns er þessi: Dettur hv. þingmanni í hug að Royal Dutch Shell eða BP eða þess vegna íslenskt fyrirtæki, kínverskt eða norskt myndi senda bréf á umhverfisráðuneytið og segja: Heyrðu, ég er að spá í að fara að leita olíu á Drekasvæðinu, er það ekki allt í lagi? Að sjálfsögðu ekki. Að sjálfsögðu fara menn ekki út í slíkt, engin alvöru fyrirtæki, a.m.k. ekki nema að vita það að íslensk stjórnvöld séu tilbúin að starfa með þeim, taka á móti þeim og hafi það að markmiði að árangur náist. Þess vegna tel ég mjög mikilvægt að þetta sé tekið út úr til að mynda umhverfisráðuneytinu sem er með, sem við höfum séð á skýrslum þaðan, m.a. í tíð fyrrverandi umhverfisráðherra og núverandi, allt aðrar áherslur í þessum málum.