157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

endurnýjun ökuskírteina eftir 60 ára aldur.

7. mál
[22:46]
Horfa

Flm. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir seinna andsvarið. Nei, í rauninni vann ég þetta mál með ákveðnum hópi eldri borgara í gegnum Ökuskólann í Mjódd og okkur leist vel á að miða við hvernig þetta er í Svíþjóð og erum þá kannski helst að horfa til þessa hóps, eldra fólks. Þannig að í rauninni hef ég engin sérstök svör um þennan yngri hóp sem þingmaðurinn spyr mig um.

Ég tek bara undir það að um mjög sambærileg mál er að ræða og það hlýtur að leiða til þess að eitthvað komi út úr þessu, hvort sem það verður síðan bara reglugerðarbreyting hjá hæstv. ráðherra sem fær þetta mál inn á sitt borð eða að það verði unnið eitthvað nánar í meðförum þingsins inni í nefndum. Það verður bara að koma í ljós. En alla vega held ég að við séum bara á mjög góðum stað og eins og ég segi, það var tilviljun að þessi mál komu inn svona nokkurn veginn á sama tíma. Það var enginn að stela neinu, ef ég má orða það þannig, enda er það ekki alveg minn háttur. Ég bara hlakka til samvinnu og vona að það verði ekki bara í þessu máli heldur í miklu fleiri málum.