157. löggjafarþing — 7. fundur,  17. sept. 2025.

Störf þingsins.

[15:11]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Við Íslendingar virðumst komnir í eina allsherjar úlfakreppu vegna loftslagsskuldbindinga ef marka má orð hæstv. ráðherra loftslagsmála og áætlar ráðherrann í nýlegu viðtali að við þurfum að greiða allt að 11 milljarða til kaupa á losunarheimildum fyrir árið 2030. Þjóð sem fær næstum alla sína orku úr vatnsafls- og jarðvarmaverum og hitar 90% af húsnæði í landinu með heitu vatni úr iðrum jarðar. Er þetta eitthvert grín? Í stað þess að vera stolt af þessum glæsilega árangri sem tók okkur áratugi að vinna að þá erum við þjökuð af sektarkennd og greiðum hnípin sektir þess vegna til annarra þjóða sem eru nokkrum hringjum á eftir okkur í umhverfishlaupinu. Tekið skal undir orð hv. formanns atvinnuveganefndar þar sem hann leggur til að við segjum skilið við slíka sektasamninga eða fáum sérstöðu okkar viðurkennda með beinum hætti.

Frú forseti. Á dögunum barst mér svar hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem ég spurði um kostnað síðustu tíu ára við loftslagsmál. Ég veit ekki hvort ég eigi að segja að svarið hafi komið á óvart en ef einhverjir héldu að fjármunirnir sé taldir í hundruðum milljóna þá er það mikill misskilningur. Síðastliðin átta ár hefur verið varið rúmum 18.000 milljónum á hverju ári í loftslagsmálefni. Áætlað er að bæta enn um betur því á næstu árum er gert ráð fyrir að útgjöldin aukist í yfir 28.000 milljónir á hverju ári til 2029. 28.000 milljónir á ári. Það eru allir kranar ríkissjóðs galopnir.

Frú forseti. Þegar spurt er um mælingar á árangri á þessum fjárútlátum er fátt um svör. Fram kom í svari ráðherra að verkefnisstjórn loftslagsmála hefur ekki skilað skýrslu til ráðherra síðan 2022, þ.e. síðustu þrjú ár hefur skýrsla samkvæmt aðgerðaáætlun ekki verið gerð. Er ekki kominn tími til, frú forseti, þegar ausið úr ríkissjóði með slíkum hætti að mælingar liggi fyrir um (Forseti hringir.) hverju það skili? Eðlilegt er að spyrja hvað hefur fengist fyrir þessa fjármuni og gerð krafa um að einhver mælanlegur árangur náist. Hvað er eiginlega planið (Forseti hringir.) í þessum málum, frú forseti?