Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Fólk býr hvorki í skýrslum né skipulagstillögum. Ég segi þetta í kjölfar umræðu sem átti sér stað hér í þingsal í gærkvöldi um frumvarp sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram um breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins. Frumvarpið lýtur að því að neitunarréttur eins sveitarfélags verði felldur niður og í staðinn muni aukinn meiri hluti geta ákveðið t.d. hvort til endurskoðunar á vaxtarmörkum komi eða ekki. Það stóð ekki á viðbrögðum fulltrúa meiri hlutans sem veifuðu skýrslum og flutningsmenn tillögunnar voru vændir um að hafa ekki kynnt sér gögn. Nefnt var að í þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins væri sko gert ráð fyrir samtals 58.000 íbúðum á næstu 15 árum innan vaxtarmarka. Það er rétt, en það eru bara tölur á blaði. Tekið var dæmi af Hafnarfirði þar sem aðalskipulag gerir ráð fyrir 6.000 íbúðum innan vaxtarmarkanna en það gleymdist að nefna að 5.000 þeirra íbúða eru á svæðum þar sem nú er atvinnustarfsemi. Telur einhver að sveitarfélagið mæti bara með gröfur á slík svæði og hefji framkvæmdir?
Við vitum að undirbúningur uppbyggingar á þéttingarreitum getur tekið langan tíma, samningar við lóðarhafa o.s.frv., og það verða ekki ódýrustu íbúðirnar. Þess vegna er áhersla á það hjá sumum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins að útvíkka vaxtarmörkin, því að það er nauðsynlegt að sveitarfélagið sjálft sé jafnhliða þéttingu byggðar með nóg af lóðum til úthlutunar. Andstæðingum útvíkkaðra vaxtarmarka láðist líka að nefna það hér í gærkvöldi að 7.500 íbúðir af þeim sem nefndar eru innan vaxtarmarkanna eru á svæðinu þar sem nú er Reykjavíkurflugvöllur.
Ég treysti því að hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra Inga Sæland taki af skarið, því að hún skilur stöðuna. Í svari við skriflegri fyrirspurn minni nýlega segist ráðherra (Forseti hringir.) hafa í hyggju að ráðast í endurskoðun á þessum málum með það fyrir augum að liðka fyrir breytingum á vaxtarmörkum (Forseti hringir.) þegar sveitarfélög komast ekki að sameiginlegri niðurstöðu.