157. löggjafarþing — 7. fundur,  17. sept. 2025.

aðbúnaður og velferð svína.

78. mál
[15:37]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Ég þakka ykkur sem greiddu atkvæði með þessu, sem mér sýnist vera allir. Ég vil segja samhliða að sláandi upplýsingar hafa birst í fjölmiðlum um aðbúnað og meðferð svína í ræktunarbúum sem virðist ekki samræmast ákvæðum laga um velferð dýra, nr. 55/2013. Við flutningsmenn teljum nauðsynlegt að varpa ljósi á og upplýsa hvernig búið er að svínum og spurningum svarað eins og hversu algengt sé að halaklippingar á svínum viðgangist hjá ræktendum og hverjir framkvæmi slíkar aðgerðir. Einnig hversu oft Matvælastofnun hafi gert athugasemdir við framkvæmd halaklippingar, hversu algengt sé að klippa tennur svína til að draga úr halabiti og hvaða aflífunaraðferðir séu notaðar í svínasláturhúsum. Síðast en ekki síst hvernig notkun gasklefa samræmist lögum og reglum um velferð dýra. Það er óþolandi að vita til þess að illa sé farið með svínin sem og önnur dýr og með öllu ólíðandi ef aðbúnaði þeirra er ábótavant. Skýrslan sem hér er beðið um mun varpa ljósi á stöðu þessara mála (Forseti hringir.) og er mikilvægt að farið sé hið snarasta í úttekt á reglum og eftirliti er varðar aðbúnað og velferð svína.

Ég segi já og þakka ykkur aftur fyrir að taka þátt í þessari atkvæðagreiðslu með svo mikilli jákvæðni.