157. löggjafarþing — 7. fundur,  17. sept. 2025.

sóttvarnalög.

80. mál
[16:19]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég fagna því að það sé tekið hér á dagskrá frumvarp til sóttvarnalaga, breyting á heildarlögunum. Eins og hæstv. ráðherra rakti hefur það legið fyrir þinginu í nokkur skipti. Ég hins vegar bendi á að frumvarpið er samið svolítið í stormi Covid-faraldursins sem er nú liðinn hjá, sem betur fer, og þess vegna langaði mig að vita hvort hæstv. heilbrigðisráðherra hefði sérstaka sannfæringu fyrir þessu frumvarpi eins og það er úr garði gert. Ég veit að hún stendur með frumvarpinu sem slíku, en hver er afstaða ráðherrans til þess að frumvarpið mögulega taki breytingum, sérstaklega í ljósi þess að það er samið þegar Covid-faraldurinn geisaði? Það kemur fram að það er samið af starfshópi, ég leyfi mér að hnýta í það, virðulegur forseti, að í greinargerð er ekki tiltekið hverjir sátu í þessum starfshópi. Hæstv. heilbrigðisráðherra listaði upp titla fólksins sem þar sátu en þar hefði verið eðlilegt að tiltaka hverjir nákvæmlega sátu í þessum starfshópi. Ef ég greindi rétt þá held ég að hæstv. heilbrigðisráðherra í sínu fyrra starfi hafi setið í þessum starfshópi sem samdi þetta frumvarp eða ég heyrði ekki betur en að það hefði verið hennar embætti sem hefði haft hönd í bagga. Þrátt fyrir það þá langar mig að spyrja og fá að vita afstöðu hæstv. ráðherra, hvort hún telji það raunhæft að þetta frumvarp, nú þegar við getum horft til baka og rykið er sest eftir Covid-faraldurinn, verði samþykkt algjörlega óbreytt, einkum og sér í lagi líka í ljósi þeirra athugasemda sem komu fram á þarsíðasta þingi, á síðasta kjörtímabili, við frumvarpið þegar það fékk þó einhverja örlitla þinglega meðferð.