heimsókn forseta öldungadeildar þjóðþings Póllands.
Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna á því að forseti öldungadeildar þjóðþings Póllands, frú Malgorzata Kidawa-Blonska, er stödd á þingpöllum ásamt sendinefnd. Þingforsetinn er hér í heimsókn í Alþingishúsinu í tengslum við opinbera heimsókn til Íslands, í boði forseta Alþingis. Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða öldungadeildarforsetann og sendinefnd velkomin í Alþingishúsið og ég vænti þess að heimsókn þeirra til Íslands verði til þess að styrkja tengslin milli landa okkar. Alþingi vottar forseta öldungadeildar pólska þingsins og pólsku þjóðinni vináttu og virðingu. Ég bið hv. alþingismenn að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]