áherslur ríkisstjórnarinnar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar og ég ítreka það sem ég hef áður sagt. Ég get svo sem bætt við: Jú, Flokkur fólksins er með risastórt hjarta sem slær af öllum krafti fyrir hagsmuni og velsæld landsbyggðarinnar eins og landsins alls. Í sambandi við sameiningu sýslumanna þá á einfaldlega að fjölga stöðvum og það á að einfalda verkferla. Það á að fjölga stöðvum úti á landi. Ég hvet hv. þingmann til að kynna sér hlutina betur, það sem er að koma inn í samráðsgátt og á fleiri staði, því að það kæmi honum skemmtilega á óvart. Og til þess að gleðja hv. þingmann þá er Flokkur fólksins sá flokkur sem hefur barist ötullega fyrir því að reyna að efla og tryggja afkomu sjávarbyggða hér í landinu sem er í raun þvert á það sem áður þekktist í tíð hv. þingmanns sem ráðherra í þáverandi ríkisstjórn.
Ég segi bara: Áfram veginn til góðra verka. Hér er risastórt hjarta sem slær fyrir landið allt.