umræða um bókun 35.
Frú forseti. Næsta mál á dagskrá er bókun 35. Nú liggur fyrir og ég hef sent póst á skrifstofustjóra Alþingis og forseta Alþingis þar sem ég bendi á að enn hefur ekki verið gengið frá skrifuðum texta af ræðum umræðunnar á síðasta þingi, sem gerir okkur þingmönnum sem viljum glöggva okkur á því sem hér er undir erfitt um vik að skoða með hvaða hætti menn hafa eftir atvikum hagað orðum sínum á fyrri stigum eða skipt um skoðun einhverjir. Það er hreinlega óskiljanlegt að hér sé komið mál undir þeim formerkjum að vera endurflutt og þess vegna eigi þetta nú allt saman að ganga mjög hratt og vel fyrir sig. Það er meira að segja í nefndum, jafn ótrúlegt og það nú er, verið að óska eftir því að endurflutt mál fái styttri umsagnarfrest heldur en hefð er fyrir.
Ég vil hvetja virðulegan forseta til að íhuga að fresta þessari umræðu þar til frágangur umræðu málsins á síðasta þingi er orðinn forsvaranlegur. Þessi nálgun er ótæk, að hér eigi að hefja umræðu um raunverulega flókið mál, álitamál, mögulega umdeildasta mál þessa þings, (Forseti hringir.) án þess að búið sé að ganga frá því sem gert var á síðasta löggjafarþingi.