umræða um bókun 35.
Frú forseti. Ég vil byrja á að taka undir orð hv. þingmanns. Bergþórs Ólasonar að það er auðvitað óforsvaranlegt þegar þessi umræða á að hefjast að gögnin frá síðasta þingi liggi ekki fyrir þingmönnum til glöggvunar á því hvaða rök voru notuð.
Mig langar líka að nefna örstutt að ég var einn af þessum 63 hér sem sat undir góðri ræðu frú forseta við setningu þingsins þar sem óskað var eftir að hér tækju þingstörf, hvað á maður að segja, betri pól í hæðina. Hér yrðu menn meira tilbúnir að leggja sig fram um að hleypa áfram góðum málum og beðið í raun og veru um það sem stundum er kallað gott veður. Ég tel að það hafi gengið eftir. Ég tel að við höfum verið að hlusta á frú forseta og að þingstörfin hafi fram til þessa, þótt skammt sé liðið, bara gengið prýðilega; málefnalegar umræður, góðar umræður með þátttöku stjórnarandstöðu og stjórnarliða. En svo kemur bókun 35. Frú forseta er vel kunnugt um (Forseti hringir.) hvar það mál er statt í hugum bæði þings og þjóðar.
Ég hygg að veðrið sé að breytast, frú forseti.