157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

umræða um bókun 35.

[11:11]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Mig langar bara til að hrósa starfsmönnum þingsins. Ég hugsaði oft til þeirra þegar allar þessar ræður bárust hérna til starfsmanna til að skrifa upp, hvað málþófsræðurnar allar voru margar, 3.000 og eitthvað — hversu rosalegt álag það hlýtur að vera sem þetta fólk er undir. Ég skil mjög vel að það sé ekki búið að prenta þær allar upp. Ég held að við ættum nú öll að prófa að setja okkur í spor starfsmanna. Það átti sennilega enginn von á hversu öfgafullt og brjálæðislega mikið þetta málþóf var og ég verð bara að segja að nú er bókun 35 á dagskrá og auðvitað verður að afgreiða þá bókun einn góðan veðurdag. Ég er bara svolítið uggandi hvort við séum mögulega að stefna inn í einhverja álíka geðveiki og í vor og í sumar, annað málþóf. Mér finnst aðeins verið að leggja drög að því en ég vona að það sé bara (Forseti hringir.) einhver misskilningur.