umræða um bókun 35.
Forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir að ræðurnar séu komnar. Það er mjög gott því að á meðan á umræðu stendur er gott að geta glöggvað sig á þeim og það er ekki gott að þurfa að hlusta þegar maður situr inni í þingsal. Það er aðeins erfiðara að leita í ræðum — svo að fólk átti sig á mikilvæginu. Hins vegar vil ég taka undir með hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni þegar hann talar um að hér sé ítrekað búið að vera að tala fyrir góðu veðri, búið að tala fyrir að mál fái fari hratt í gegn. Það er aftur þetta með orð og efndir. Það bara fer ekki saman hjá þessari ríkisstjórn. Eins og þið getið ímyndað ykkur hefur Miðflokkurinn ekkert á móti því að tala um bókun 35 en á meðan fara ekki önnur mál í gegn. Á meðan bókunin er í gangi, sem þarf að ræða mikið, þá augljóslega eru ekki önnur mál í gangi á sama tíma. Þannig að gott og vel, við tökum þessa 1. umræðu. Ég veit ekki hvenær þið ætlið að koma með 2. umræðu en þar er þunginn í umræðunni. Þannig að (Forseti hringir.) ef þið komið í fréttir síðar í dag, kæru meirihlutaþingmenn, og eruð að kvarta yfir að koma ekki málum að þá er þetta ykkar eigin ákvörðun.