157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

umræða um bókun 35.

[11:16]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseti vill af tilefni þessarar umræðu geta þess að í upphafi þessarar þingviku var fundað með þingflokksformönnum eins og alltaf er gert. Þar kynnti forseti yfirlit yfir þinghaldið og fram kom að mál utanríkisráðherra yrði á dagskrá í dag og fram kom að það yrði eina málið á dagskrá fyrir utan óundirbúnar fyrirspurnir. Það hefur komið fram mjög skýr vilji þingflokksformanna, og það er einnig vilji forseta, um þau mál sem fara á dagskrá þingfundar að hægt sé — helst — að ljúka umræðu um þau á fundinum. Það er auðvitað í höndum hv. þingmanna hvernig það fer og þá er gott að vita það fyrir fram hversu mikinn tíma þarf til að ræða tiltekin mál.