umræða um bókun 35.
Frú forseti. Það er hárrétt að þetta var rætt á fundi þingflokksformanna á mánudag enda gerði ég enga athugasemd við að málið væri á dagskrá hér í dag. Ég geri athugasemd við það sem mér var ekki ljóst fyrr en í dag, að frágangi málsins frá síðasta kjörtímabili væri ekki lokið. Það er ánægjulegt að ræður séu, þó að aðeins sé frá talgreini, komnar inn á vef þingsins. Það undirstrikar kannski þau hröðu viðbragð að það blasir við öllum mikilvægi þess að texti sé aðgengilegur en ekki vídeó og hljóðupptaka. Það þekkjum við öll sem höfum starfað hér.
En ég verð hér, virðulegur forseti, að gera athugasemdir við orð fulltrúa Flokks fólksins í forsætisnefnd, af öllum nefndum þingsins, hér áðan þar sem hún lýsir — og þetta er sálfræðimenntaður þingmaður, ég veit ekki hvort þeir eru fleiri hér inni en í öllu falli er þessi tiltekni þingmaður, hv. þm. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, sálfræðimenntuð — umræðum hér í þinginu sem geðveiki. (Forseti hringir.) Ég vil beina því til virðulegs forseta að þetta verði rætt á forsætisnefndarfundi. Þetta er ótækt.