157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

umræða um bókun 35.

[11:25]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég vek athygli hæstv. forseta á ummælum hv. þingmanns Flokks fólksins, Kolbrúnar Baldursdóttur, hér áðan. Ég er ekki bara að tala um yfirlýsingar um geðveiki, sem að einhverju leyti voru dregnar til baka í seinni ræðu, heldur lýsti hv. þingmaður í seinni ræðu sinni einhvers konar sálarangist, kvíða yfir því að þessi umræða skyldi þurfa að eiga sér stað. Ég velti því fyrir mér og bið hæstv. forseta að meta það: Telur hæstv. forseti að hv. þingmaður sé í stakk búin til að stýra fundum þingsins á meðan umræða um þetta mál fer fram í ljósi þeirra játninga sem hér komu fram um að það ylli hreinlega kvíða og mikilli angist að þessi umræða skuli yfir höfuð eiga sér stað? Í ljósi þess að hv. þingmaður er í forsætisnefnd bið ég hæstv. forseta að skoða þetta.