157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[11:41]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Veruleikinn er sá að það er fallinn dómur, m.a. í máli ungs læknis, sem varðar réttindi sem læknirinn varð af, af því að bókunin var ekki réttilega innleidd. Það segir alveg skýrt í hæstaréttardómnum að bókunin hefur ekki verið réttilega innleidd. Pólitískt at — heimsmálin eins og þau eru núna; það er bara pólitísk afstaða Miðflokksins að tala af einhverri loðmullu um mikilvægi EES-samningsins. Ég bið þá Miðflokkinn bara að segja það alveg skýrt: Eruð þið með EES-samningnum eða viljið þið fara einhverja aðra leið? Það er pólitísk afstaða og ég bara virði hana. En í guðanna bænum talið þið þá hreint út.

Það er alveg skýrt af minni hálfu, ekki síst eftir þróun mála — þegar ég var í stjórnarandstöðu studdi ég líka þáverandi utanríkisráðherra af einurð til að koma inn þessari bókun til að treysta öryggi einstaklinga, öryggi fyrirtækja og lögaðila í landinu. En núna skiptir öllu máli, að mínu mati, að við stöndum vörð um EES-samninginn, að við sendum út þau skilaboð að við séum ábyrgur aðili í samningaviðræðum. Við stöndum við það sem við höfum skrifað undir og við ætlum að gera það sem þarf til að (Forseti hringir.) tryggja öryggi borgaranna. Við ætlum með þessu m.a. að standa vörð um réttindi borgaranna en ekki síður að standa vörð um EES-samninginn sjálfan.