Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Ég vil undirstrika að það er ekki alltaf þannig að við sjáum fyrir hvernig umgjörðin þróast eða hvaða lagaákvæði skarast og það er auðvitað ákveðinn öryggisventill í frumvarpinu þannig að því sé haldið til haga. Ég tel, í ljósi þess hve umfangsmikil umfjöllunin hefur verið af hálfu nefndarinnar og bara nokkrar vikur síðan þingið var með þetta í sínum höndum, að þar hafi átt sér stað gríðarlega mikilvæg vinna þar sem gestir voru kallaðir fyrir, vinna sem við eigum einmitt að nýta okkur og láta löggjafann svolítið stjórna með þetta mál. Við erum búin að fara í miklar greiningar á þessu í gegnum tíðina, þær liggja allar fyrir. Veruleikinn er sá að við þurfum fyrst og síðast að tryggja réttindi borgaranna, tryggja réttindi lögaðila og ekki síst standa með EES-samstarfinu.