157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[11:50]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessar spurningar. Ég tel mikilvægt, því að þetta eru mikilvægar spurningar ekki síst þær sem tengjast netverslun og fleira, að nefndin fari vel yfir þetta. Talandi um Smáríkið eða aðrar netverslanir með áfengi þá hefur þetta verið mögulegt út af EES-samningnum. Síðan á bara eftir að skera nákvæmlega úr þessu. Það er verðugt verkefni fyrir nefndina að hafa þetta alveg skýrt en möguleikinn er til staðar einmitt út af EES-samningnum. Ef EES-samningurinn hefði ekki verið til staðar þá vitum við hver harðkjarna áfengispólitík liðinna ára og áratuga hefur verið. Ég viðurkenni það alveg að ég hef ekki deilt henni, ég deili frekar frjálslyndi í þessu og því að borgarar fái að byggja réttindi sín m.a. á EES-samningnum. Hvað varðar áfengisverslun á netinu, (Forseti hringir.) þá held ég að við eigum að vera með frekar rúma túlkun á því ákvæði en um það er náttúrlega pólitískur ágreiningur. (Gripið fram í.) Það er mín skoðun að það þurfi að tryggja ákveðnar leiðir og frjálslyndi en á endanum sýnist mér það vera dómstóla að kveða úr um þetta.

(Forseti (ÞSv): Forseti biður um hljóð í salnum og minnir enn og aftur á að ræðutími er ein mínúta.)