Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka formanni Sjálfstæðisflokksins fyrir þessa spurningu og líka fyrir ljómandi ræðu fyrir nokkrum vikum síðan um nákvæmlega þetta mál og fleiri þingmenn Sjálfstæðisflokksins ætla sér greinilega að standa með EES-samningnum. Ég held að það séu mjög mikilvæg skilaboð á þessum tímum.
Varðandi það að bíða, eins og ég skildi hv. þingmann, úrlausnar EFTA-dómstólsins þá tel ég mjög mikilvægt að með þessari leið höfum við forræði á málinu. Þá höfum við forræði á málinu og það er líklegra en hitt, ef þetta fer til EFTA-dómstólsins, að þá muni framkvæmdastjórnin og fleiri gera ýtrustu kröfur til túlkunar á bókun 35. Við erum ekki að fara ýtrustu leiðina. Við erum að fara eins milda leið og hægt er til að tryggja virkni samningsins. Með þessu erum við, Alþingi Íslendinga, að hafa forræði á málinu sjálfu og ég hefði haldið að það væri líka meiri bragur að því að hlíta tilmælum Hæstaréttar Íslands, sem er alveg með skýra leiðsögn um það að það er ekki búið að innleiða bókunina rétt, frekar en að fara með málið fyrir erlenda dómstóla.