157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[11:54]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Bókun 35 snerti grundvallaratriði í réttaröryggi og samskiptum Íslands við nágrannaþjóðir. Sjálfstæðisflokkurinn hefur varið EES-samninginn sem hagsmunamál, eins og ég sagði hér fyrr, um leið og við höfum lagt áherslu á íslenskt fullveldi og ábyrgð Alþingis. Sumir, eins og ég nefndi hér, telja skynsamlegt að láta reyna á málið fyrir EFTA-dómstólnum samkvæmt þeim úrræðum sem samningurinn sjálfur mælir fyrir um. Slík leið er ekki andstaða við EES-samninginn. Aðrir vilja festa skýra forgangsreglu án tafar til að tryggja samræmi í stjórnsýslu og dómstólum og báðar nálganir miða að sama markmiði, að réttindi sem EES veitir virki í reynd heima fyrir. Lykilforsendur eiga að vera óumdeilanlegar. Einungis íslensk lög gilda á Íslandi og Alþingi hefur síðasta orðið. Ekkert í þessari umræðu felur í sér breytingu á stjórnarskrá eða sjálfvirka upptöku reglna. Næstu skref verða því að byggja á vönduðu nefndarstarfi, opnum umsögnum og sjálfstæðum álitsgerðum. (Forseti hringir.)

Ég spyr því hæstv. ráðherra: Telur ráðherra ekki nauðsynlegt að gefa þinginu allan þann tíma og svigrúm sem þarf til að ræða þetta mál hér til niðurstöðu?