157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[13:03]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Fyrir kosningar sagði formaður Samfylkingarinnar og núverandi hæstv. forsætisráðherra að það væri mikilvægt að leggja ágreining um Evrópusambandið til hliðar og einbeita sér að því að ráðast í þau verkefni sem hægt væri að framkvæma hratt og vel til að ná niður vöxtum og verðbólgu. Hvorugt hefur gengið eftir og við sjáum nú ítrekað að afstaða hæstv. utanríkisráðherra, ég leyfi mér að segja þráhyggja, varðandi Evrópusambandið hefur orðið ofan á. Þetta mál, bókun 35, var fyrsta mál þessarar ríkisstjórnar á nýju kjörtímabili að afloknum þeim málum, fjárlögum og bandormi, sem skylda var að byrja á.

Nú á nýju þingi er þetta aftur algjört forgangsatriði þessarar ríkisstjórnar að gefa eftir af fullveldisrétti Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Fyrir þessari vegferð, svo ég noti nú tungutak sem er vinstri mönnum kunnugt, stendur hæstv. utanríkisráðherra og flutti hér áðan ræðu en fylgir henni nú reyndar ekki eftir með viðveru sinni hér en við hljótum að gera ráð fyrir því að hæstv. ráðherra sé að fylgjast með umræðu um þetta hugðarefni sitt einhvers staðar úr fjarska. Þar af leiðandi ætla ég að leyfa mér að tala um málflutning hæstv. ráðherra og gera ráð fyrir að ráðherrann hæstv. komi þá og leiðrétti málflutning minn telji hann þörf á því.

Framganga hæstv. ráðherra í þessu máli eins og Evrópusambandsmálum öllum ber vott um hreinan popúlisma. Hér voru endurfluttar athugasemdir úr fyrri umræðu málsins eins og að hæstv. ráðherra hefði algjörlega farið á mis við þá umræðu sem átti sér stað um þetta mál í síðustu umferð. Það er þá kannski fyrst og fremst áminning um mikilvægi þess að við rekjum málið aftur og gerum það ítarlega. Hér komu fram gamalkunnar fullyrðingar á borð við það skálkaskjól að ríkisstjórnin og hæstv. ráðherra neyðist einfaldlega til þess að leggja þetta mál fram vegna dóms Hæstaréttar. Þar er snúið út úr, svo að ég kveði ekki fastar að orði, dómi Hæstaréttar og nánast eins og hæstv. ráðherra hafi ekki lesið hann. Hvað kemur fram í þeim dómum sem vísað hefur verið til? Jú, eingöngu það að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið hafi verið innleiddur með þeim hætti sem gert var og það er staðfest með þessum dómi. Þá er því haldið fram ranglega að Hæstiréttur hafi sagt að það ætti að innleiða bókun 35. Það kemur hvergi fram. Það er einfaldlega bent á að eins og þingið skildi við málið 1993 viljandi — það var ekkert óvart sem það gerðist — það gildir. Hvers vegna kom það til að bókun 35 var innleidd með þeim hætti sem þá var gert? Það var vegna þess að menn gerðu sér grein fyrir því, eins og við höfum nú reyndar rakið hér í fyrri umræðum um þetta mál, að væri það ekki gert með þeim hætti sem raunin varð væri hætta á því að Íslendingar væru að gefa eftir af fullveldisrétti sínum og fyrir vikið jafnvel að fara á svig við stjórnarskrána og auk þess væru líkur á því að þá næðist ekki þingmeirihluti fyrir samningnum.

Það eina sem Hæstiréttur hefur gert er að minna á með hvaða hætti samningurinn var innleiddur. Þá fáum við að heyra þær undarlegu skýringar að með því móti fari fólk á mis við réttindi sem það nyti ella. Ríkisstjórnin virðist steingleyma því að hún er ríkisstjórn, hún hefur meiri hluta hér í þinginu. Hún getur breytt lögum, þar með talið réttindum borgaranna, með þeim hætti sem hún telur þörf á, telur eðlilegt og æskilegt. Hún þarf ekki heimildir Evrópusambandsins til þess. Hún getur lagað sig að Evrópuregluverkinu að því marki sem hún telur sig þurfa eða kýs að gera. Það að stilla málum upp með þeim hætti að réttindi sem koma að utan séu alltaf á einhvern hátt betri og æðri en réttindi sem eru samþykkt hér að frumkvæði Alþingis er fyrst og fremst áminning um hversu litla trú þessi ríkisstjórn hefur á sjálfri sér, Alþingi og fullveldinu, að hér komi hæstv. ráðherra eina ferðina enn upp til að lýsa því yfir að við þurfum á leiðsögn hins vitra valds í Brussel að halda til þess að tryggja mannréttindi á Íslandi.

Hvers konar uppgjafarhugur er þetta? Hvers konar þrælslund er að telja að þau réttindi sem einhverjir embættismenn í Brussel veita fólki séu mikilvægari, betri og æðri þeim réttindum sem Alþingi Íslendinga hefur rétt á og getu til að innleiða? Þetta er áminning um takmarkaða trú á fullveldi Íslands og um leið áminning um þá þráhyggju sem birtist hjá þessari ríkisstjórn, þrátt fyrir yfirlýsingar hæstv. forsætisráðherra um annað fyrir kosningar, þá þráhyggju að það beri að koma Íslandi inn í Evrópusambandið með öllum tiltækum ráðum. Hér er greinilega ein hindrun í veginum að mati hæstv. utanríkisráðherra og ríkisstjórnarinnar og mikilvægt að ryðja henni úr vegi sem fyrst svo hægt sé að hefja fyrir alvöru uppgjafarviðræðurnar með umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Eða ef hæstv. ráðherra tryði því raunverulega að með umsókn ætti sér stað eitthvað sem heitir samningaviðræður milli Íslands og Evrópusambandsins, eins og verið sé að sameina tvo jafnstæða aðila, hvers vegna á þá að gefa eftir af stöðu Íslands fyrir fram áður en þær samningaviðræður hefjast eins og verið er að leggja til með þessu frumvarpi? Hvers vegna eru önnur mál sem við höfum séð hvað Evrópusambandið varðar öll til þess fallin að sýna undirgefni áður en hugsanlegar viðræður hefjast? Það er vegna þess að þessi hæstv. ráðherra utanríkismála og þessi hæstv. ríkisstjórn vita það að það er ekkert til sem heitir samningaviðræður um hvað Ísland ætli að fallast á í viðræðum við Evrópusambandið. Viðræðurnar snúast um aðlögun. Umsóknarríkið útskýrir með hvaða hætti það ætlar að laga sig að regluverki Evrópusambandsins og hér er stór liður í því að gefa eftir afstöðu Íslands fyrir fram svo að Evrópusambandið skilji að það muni mæta undirgefni af hálfu íslensku ríkisstjórnarinnar.

Hæstv. ráðherra leyfir sér að tala með þeim hætti sem gert var hér áðan að þetta sé bara eitthvað sem allir eigi að vera sammála um og svo kemur hefðbundinn skætingur, sem ég verð að gera athugasemd við, frú forseti, og hæstv. utanríkisráðherra heldur stöðugt áfram með að ef menn eru ekki sammála um allt sem hæstv. ráðherra segir þá séu þeir á móti EES-samningnum. Þetta er nú ekki beinlínis fáguð stjórnmálaumræða. En svona nálgast hæstv. ráðherra þetta, að þetta sé mál sem allir eigi að vera sammála um og ég heyrði ekki betur en hæstv. ráðherra hefði haldið því fram að allir væru sammála um þetta mál. Það er ekki rétt. Miðflokkurinn er ekki sammála ríkisstjórninni um þessa eftirgjöf á fullveldi landsins. Við munum gera hvað við getum til að ræða málið á grundvelli staðreynda og útskýra fyrir hæstv. ráðherra og ríkisstjórn þá áhættu sem hér er verið að taka. Ég get ekki svarað fyrir aðra flokka en ég get svarað fyrir Miðflokkinn. Hann mun beita sér fyrir fullveldi landsins alla tíð. Við fáum væntanlega að heyra afstöðu annarra stjórnarandstöðuflokka, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, hér í umræðunni á eftir, en sú fullyrðing hæstv. ráðherra að þetta sé mál sem allir séu í raun sammála um er röng. Miðflokkurinn mun aldrei fallast á eftirgjöf á fullveldi Íslands.

Í yfirlýsingum ráðherrans á borð við þær sem ég nefndi áðan um dóm Hæstaréttar fer ráðherra viljandi með rangt mál — ég geri ráð fyrir að hæstv. utanríkisráðherra sé að horfa á þetta og hann getur þá komið í andsvar við mig og leiðrétt. Ég tel að hæstv. utanríkisráðherra fari viljandi með rangt mál og geri það vegna þess að hæstv. ráðherra og flokkur hans eru popúlistar og stunda það sem ég held að megi alveg kalla falsstjórnmál. Það er mikið rætt um upplýsingaóreiðu og falsfréttir þessa dagana. Hér hlýddum við áðan á hæstv. utanríkisráðherra flytja ræðu sem felur í sér falsstjórnmál og hafi einhverjir efasemdir um þetta þá geta þeir sjálfir kynnt sér þá dóma Hæstaréttar sem hæstv. ráðherra hélt fram hér að hefðu falið það í sér að Hæstiréttur væri að segja Alþingi Íslendinga að samþykkja þessa tillögu um bókun 35. Það var ekki svo. Hæstiréttur var fyrst og fremst að staðfesta að bókunin hefði verið innleidd með þeim hætti sem Alþingi ætlaði sér á sínum tíma.

Ef þessi ótti er raunverulegur en ekki falspólitík hjá hæstv. ráðherra að Íslendingar njóti ekki nægra réttinda vegna þess með hvaða hætti bókun 35 var innleidd, af hverju lagar ríkisstjórnin þá ekki málin að eigin frumkvæði? Hún er með meiri hluta á Alþingi. Hún er nýbúin að leggja fram í annað sinn þingmálaskrá sína. Hvers vegna tekur hún ekki að sér sjálf að bæta réttindin? Það er mikilvægt að hafa í huga, sem hæstv. ráðherra lítur algjörlega fram hjá, að þetta virkar í báðar áttir. Það eru réttindi á Íslandi sem eru ekki til staðar í EES- eða Evrópusambandsregluverkinu. Á að fórna þeim réttindum? Það eru skilaboðin af því að hin erlendu réttindi, og þar af leiðandi væntanlega hinar erlendu skyldur, eru ríkari en það sem við afgreiðum hér á Alþingi. Þá hlýtur að eiga að fórna því sem við höfum fram yfir eða getum haft fram yfir, svo ég minni nú aftur á það. Við getum hér á Alþingi samþykkt þau lög, þau réttindi, sem við teljum þörf á. En það á að fórna þeirri getu að umtalsverðu leyti. Þetta eru mikilvæg réttindi og það er ekki bara kenning. Við höfum séð það raungerast á síðustu árum í þeim miklu átökum sem við höfum, Íslendingar og Alþingi og ríkisstjórnir, átt við Evrópusambandið og evrópsk ríki varðandi til að mynda Icesave og varðandi uppgjör á slitabúum bankanna, tveir atburðir sem gjörbreyttu efnahagsstöðu Íslands til hins betra og hefðu líklega ekki farið eins vel ef búið hefði verið að innleiða það frumvarp sem hér er til umræðu. Af því að ég sé ekki hæstv. ráðherra birtast hér enn sem komið er verð ég að treysta á að hann fylgist með úr fjarska eða muni skoða þetta síðar og vil ítreka við hæstv. ráðherra og raunar Jón Sigurðsson, sem fylgist alla vega með hér á málverki — eina málverkið sem fær að hanga í þingsal — að Miðflokkurinn mun aldrei gefast upp í vörn sinni fyrir fullveldi Íslands. Hann mun ekki hlusta á falspólitík eða útúrsnúninga í þeim efnum. Hann mun ætíð verja fullveldi landsins út í ystu æsar.